Endurnýjað starfsleyfi á Hvolsvelli

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands afhenti SS í dag endurnýjað starfsleyfi til 12 ára fyrir kjötvinnsluna á Hvolsvelli. 

Fyrra starfsleyfi sem gilt hafði í 4 ár, rann út í dag, en í kjölfar skoðunar heilbrigðisfulltrúa á starfsemi, húsnæði og búnaði í dag var nýtt starfsleyfi gefið út án athugasemda.

,,Um leið og ég óska okkur öllum til hamingju með hið nýja starfsleyfi vil ég þakka starfsfólki sinn þátt í að halda uppi góðum “standard” í vinnslunni, sem skipar okkur í fremstu röð íslenskra kjötiðnaðarfyrirtækja með stærstu, öflugustu og bestu kjötvinnslu landsins”  sagði Guðmundur Svavarson framleiðslustjóri í tilefni afhendingarinnar.

Á myndinni veitir Guðmundur framleiðslustjóri SS nýju starfsleyfi viðtöku úr hendi Sigrúnar Guðmundsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.

Dagatal deildarfunda 2010

Tímasetning deildarfunda á árinu 2010.

 Dags  Deild  Staður
     
 23/2 Kjósardeild Ásgarðsskóli
 24/2 Skeiðadeild, Gnúpverjadeild og Hrunamannadeild Félagsh.Árnesi
 2/3 Gaulverjabæjardeild, Árborgardeild, Hraungerðisdeild, Villingaholtsdeild, Grímsnesdeild, Þingvalla- og Grafningsdeild og Ölfusdeild SS Selfossi
 3/3 Rangárvalladeild, Holta- og Landmannadeild, Ása- og Djúpárdeildverjabæjardeild Laugaland
 4/3 kl. 14:00 Biskupstungnadeild og Laugardalsdeild Reykholt
 9/3 kl. 12:00 Hvalfjarðardeild, Borgarfjarðar- og Mýrardeild og Snæfells- og Hnappadalsdeild Hyrnan
 10/3 Hvammsdeild, Dyrhóladeild, A-Eyjafjalladeild, V-Eyjafjalladeild, A-Landeyjadeild, V-Landeyjadeild, Fljótshlíðar- og Hvolhreppsdeild Heimaland
 11/3 kl. 12:00 Daladeild Strax Búðardal
 11/3  Öræfadeild, Hörgslandsdeild, Kirkjubæjardeild, Skaftártungudeild og Álftavers- og Meðallandsdeild            Klaustur

Allir fundirnir hefjast kl. 21:00 nema deildarfundir Biskupstungnadeildar og Laugardalsdeildar sem hefst kl. 14:00. Hvalfjarðardeild, Borgarfjarðar- og Mýrardeild og Snæfells- og Hnappadalsdeild kl. 12:00.  Einnig er fundur í Daladeild kl. 12:00.

 

Vel heppnuð jólavertíð

Íslendingar kunna svo sannarlega að meta jólavörurnar frá SS ef marka má sölu í jólamánuðinum.  Flestar jólavörur þ.m.t. SS hamborgarhryggur og birkireykt læri seldust upp hjá okkur, þrátt fyrir að bætt væri við framleiðsluáætlanir.  Þá seldist hin frábæra nýjung Tindafjallahangikjet upp löngu fyrir jól, en þar er á ferðinni tvíreykt, þurrkað og sérverkað hangilæri með beini, sem ætlast er til að sé borðað hrátt.  Það er greinilegt að íslenskir neytendur treysta okkur sem fyrr til að framleiða aðeins úrvals kjötvörur sem standast allar kröfur. Við kunnum svo sannarlega að meta þetta traust og munum áfram gera okkar allra besta til að standa undir því trausti. 

Starfsfólk í framleiðslu- og söludeildum félagsins lagði hart að sér við framleiðslu- og sölu jólavaranna og skilaði frábærum árangri eins og ávallt.  Virkilega ánægjulegt var að sjá vel heppnað og gott samstarf framleiðslu- og sölufólks.  Fyrir það skal þakkað.

Sláturfélag Suðurlands þakkar viðskiptavinum og starfsfólki ánægjulegt samstarf á líðandi ári og óskar þess að nýtt ár beri í skauti sér góð samskipti, gleði og kærleika.

Á myndinni má sjá þá Jón Þorsteinsson, verkstjóra í kjötskurði og Odd Árnason, verksmiðjustjóra með hluta af okkar glæsilegu jólavörum en myndina tók Magnús Hlynur Hreiðarsson.