Ný verðskrá á Yara áburði komin út

Yara hefur birt nýja verðskrá á áburði.

Verðskráin gildir til 31. janúar 2014 en þó með fyrirvara um breytingar á gengi. 

Yara gaf út verðskrá 29. nóvember s.l. þar sem kynnt var 8 – 12% lækkun á staðgreiðsluverði frá síðasta sölutímabili. Frá því að sú verðskrá var gefin út hefur heimsmarkaðsverð á áburði hækkað umtalsvert, sérstaklega þó köfnunarefnisáburður en einnig NPK áburður. Af þessum sökum verður ekki hjá því komist að hækka verð á áburði. Staðgreiðsluverð hækkar um 1,8% og greiðsludreifingarverð um 0,5% auk þess sem 1000 kr/t á flutningstilboð fellur niður sem vegur sem  1 – 3% verðhækkun eftir flutningsvegalengd. 

Nánari upplýsingar á www.yara.is

Verðhlutföll á kindakjöti 2014

SS birtir nú verðhlutföll á kindakjöti fyrir haustið 2014. Ekki eru gerðar miklar breytingar frá fyrra hausti. Áætlað er að hefja slátrun 20. ágúst með um 800 kindum og 113% verðhlutfalli fyrir dilka. Samfelld slátrun hefst svo 10. september.

Breytingar sem nú eru gerðar byggja á reynslu síðasta hausts og ættu að stuðla að betri þjónustu við bændur og á sama tíma góðri nýtingu sláturhússins og lægri sláturkostnaði.

Verðhlutföll kindakjöts haustið 2014 – nánari upplýsingar.