Bændaverð á fullorðnum hrossum hækkað

SS hækkar bændaverð á fullorðnum hrossum um tæplega 50% frá og með 23. febrúar og greiðir þar með hæsta verð sláturleyfishafa fyrir fullorðin hross.  Slátrun hrossa hjá félaginu jókst verulega á síðasta ári og eftirspurn eftir hrossakjöti fer vaxandi innanlands og utan. 

Við hvetjum bændur til að setja sig í samband við sláturhúsið á Selfossi vegna sláturpantana.

Jafnframt hafa verið gerðar breytingar á flutningsgjaldi hrossa og nautgripa.
 

Dagatal 2009

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 27. mars 2009 á Laugalandi, Holtum og hefst kl. 15:00.
 
Birtingaráætlun:
• Jan-Jún uppgjör, þann 28. ágúst 2009.
• Júl-Des uppgjör, þann 26. febrúar 2010.
 
Jafnframt er fyrirhugað að halda aðalfund vegna ársins 2009, föstudaginn 26. mars 2010.

Sláturmarkağur SS og Hagkaupa

Sláturmarkağur SS og Hagkaupa er í fullum gangi en hann hófst 16. september og stendur til 30. október.

Sláturmarkağurinn hefur fariğ gríğarlega vel af stağ en şağ eru sífellt fleiri sem taka slátur á haustin og viğhalda şessum skemmtilega siğ. Til sölu er bæği ferskt og frosiğ slátur. 

Einnig bığur SS uppá ½ frosna lambaskrokka í kassa og heila skrokka á mjög hagstæğu verği.

 
Sláturmarkağurinn er í Hagkaup í Skeifunni og er opnunartíminn sem hér segir: 
 
     Şriğjudaga – föstudaga frá kl. 14:00 – 20:00 
     Laugardaga frá kl. 14:00 – 20:00 
     Sunnudaga er lokağ.
 
Nánari upplısingar veittar hjá Hagkaup Skeifunni í síma 563 5000.
 
 
 


 
 
 

Afkoma ársins 2008

Fréttatilkynningin á pdf. formi með 5 ára yfriliti

Ársreikningur 2008 á pdf. formi

• Tekjur ársins 6.605,2 mkr. en 5.472,4 mkr. árið 2007.
• 1.555,0 mkr. tap á árinu, en 132,7 mkr. hagnaður árið áður.
• EBITDA afkoma var 499,4 mkr. og hækkar um 34,2 mkr. frá fyrra ári.
• Fjármagnsliðir neikvæðir um 1.840,6 mkr. en um 123,5 mkr. árið áður.
 
Ársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. sem Sláturfélagið á að öllu leyti.
 
Tap samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2008 var 1.555,0 mkr. Árið áður var 132,7 mkr. hagnaður. Neikvæð breyting í afkomu milli ára stafar fyrst og fremst af gengistapi erlendra lána samstæðunnar og háu vaxtastigi. Eigið fé Sláturfélagsins er 1.005,9 mkr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 16%.
 
Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 6.605 mkr. árið 2008, en 5.472 mkr. árið áður og hækka því um 20,7%. Aðrar tekjur voru 78 mkr en 34 mkr. árið áður. Hækkun rekstrartekna umfram verðlagsbreytingar skýrist af magnaukningu í kjötsölu og tilbúnum áburði.
 
Vöru- og umbúðanotkun var 3.448 mkr. en 2.540 mkr. árið áður. Launakostnaður hækkaði um tæp 8%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um 12% og afskriftir hækkuðu um 56%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 125 mkr., en 226 mkr. árið áður sem stafar af 135 mkr. hækkun afskrifta og niðurfærslu á viðskiptavild.
 
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 1.841 mkr., en voru 124 mkr. árið áður. Gengistap nam 1.567 mkr. samanborið við 9 mkr. árið áður. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 0,1 mkr. en árið áður um 25 mkr. Reiknaður er tekjuskattur til tekna að fjárhæð 160 mkr. en var 2 mkr. árið áður. Tap af rekstri ársins var 1.555,0 mkr. en 132,7 mkr. hagnaður árið áður.
 
Veltufé frá rekstri var 344 mkr. árið 2008, samanborið við 338 mkr. árið 2007.
 
Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2008 voru 6.248 mkr. og eiginfjárhlutfall 16% en 36% árið áður. Veltufjárhlutfall var 1,7 árið 2008, en 1,8 árið áður.
 
Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2008 var í aprílmánuði greiddur 15,86% arður af B-deild stofnsjóðs alls 28 mkr. og reiknaðir 10,0% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 24 mkr.
 
Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.
 
Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti í samræmi við heimildir í reglum félaga á Tilboðsmarkaði Kauphallarinnar.
 
 
Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 27. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að hvorki verði greiddur arður af B-deild né reiknaðir vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs.
 
 
Staða og horfur
Eitt erfiðasta rekstrarár í rúmri 100 ára sögu félagsins er að baki. Traustar grunnstoðir rekstrarins og sterk eiginfjárstaða SS veldur því að félagið stendur af sér þær efnahagslegu þrengingar sem nú ganga yfir. Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur verið afar óhagstætt, mikil verðbólga, hátt vaxtastig og neikvæð gengisþróun krónunnar og framundan er mikill samdráttur í einkaneyslu samfara auknu atvinnuleysi. Við styrkingu gengis, lækkun verðbólgu og lækkun vaxta mun SS bæta verulega rekstrarafkomu á árinu 2009.
 
SS hefur nú þegar brugðist við breyttum aðstæðum með því að bjóða vörur sem falla betur að breyttu neyslumunstri landsmanna. Kjötiðnaður félagsins er vel í stakk búinn til að takast á við þær aðstæður sem framundan eru.
 
Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur aukið hlutdeild sína á markaði enda mörg vörumerki deildarinnar vel þekkt á heimsvísu. Sala á tilbúnum áburði til bænda í samstarfi við Yara í Noregi hefur aukist umtalsvert enda vörugæðin þekkt meðal bænda. Innflutningur á kjarnfóðri er hafin í samstarfi við DLG í Danmörku sem styrkir enn frekar innflutningshluta félagsins.
 
Áburður og kjarnfóður hefur hækkað mjög mikið á undanförnum árum, sérstaklega vegna neikvæðrar gengisþróunar. Staða bænda hefur því versnað mikið og brýnt að þessari þróun verði snúið til baka þannig að rekstrargrundvöllur landbúnaðar sé tryggður.
 
Útflutningsskylda á dilkakjöti er fallin niður. Af þessum sökum ríkir talsverð óvissa um afkomu kjötgreina þegar kemur fram á árið 2010.
 
Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000
 
Reykjavík, 20. febrúar 2009
Sláturfélag Suðurlands svf.

Ný verðskrá fyrir YARA áburð 2009 er komin út.

Fram kemur meðal annars að mikil óvissa sé um gengisþróun krónu á næstu vikum og mánuðum og að ekki er hægt að gengisverja áburðarkaup eins og undanfarin ár sem veldur því að verðskrá er nú í fyrsta sinn sett fram í evrum.  Gengi evru á greiðsludegi grundvallar því verð í íslenskum krónum fyrir áburðinn.

Verðskráin er auk þess sett fram miðað við staðgreiðsluverð og stiglækkandi pöntunarafslátt fram á vorið.  Ef pantað er fyrir lok febrúar svo dæmi sé tekið er veittur 10% pöntunarafsláttur og ljúka þarf greiðslum fyrir 20. mars, sjá nánar í verðskrá og upplýsingum um viðskiptakjör. Greiðsludagur áburðar mun því ráða kaupverðinu í íslenskum krónum.

Nánari upplýsingar um YARA áburð er að finna hér.