Sauðfjárslátrun 2011, þróun flokkunar og meðalverðs.

Til að mæta þörfum bænda um upplýsingar í því skyni að hver og einn geti metið hagkvæmasta sláturtíma fyrir sig þá mun SS birta upplýsingar um þróun flokkunar og meðalverð meðan á sauðfjársláturtíð stendur. Ákvarðanir bænda sem byggja á réttum upplýsingum hjálpa svo félaginu að móta hvernig verðlagning á að breytast eftir vikum til að stuðla að jafnri ásókn í slátrun og lágmörkun sláturkostnaðar sem skilar sér til bænda í hærra afurðaverði. 

Eftirfarandi tafla verður uppfærð vikulega. Sjá má að fyrstu slátranir skila háu meðalverði sem er nánast hið sama á milli vikna þrátt fyrir að verðskráin lækki í hverri viku. Stígandi er í holdfyllingu en fitan sveiflast aðeins. Eftir breytingu á verðhlutföllum skv. tillögu LS vegur holdfylling meira en fita í verði nema fita fari yfir 3.
  

Sauðfjárslátrun 2011, flokkun og meðalverð

Til að mæta þörfum bænda um upplýsingar í því skyni að hver og einn geti metið hagkvæmasta sláturtíma fyrir sig þá mun SS birta upplýsingar um þróun flokkunar og meðalverð meðan á sauðfjársláturtíð stendur. Ákvarðanir bænda sem byggja á réttum upplýsingum hjálpa svo félaginu að móta hvernig verðlagning á að breytast eftir vikum til að stuðla að jafnri ásókn í slátrun og lágmörkun sláturkostnaðar sem skilar sér til bænda í hærra afurðaverði.
 
Eftirfarandi tafla verður uppfærð vikulega. Sjá má að fyrstu slátranir skila háu meðalverði sem er nánast hið sama á milli vikna þrátt fyrir að verðskráin lækki um 2%. Ástæðan er sú að holdfyllingin hækkar aðeins en fyrst og fremst er það fitueinkunnin sem lækkar og hækkar þar með meðalverð en eins og kunnugt er þá hefur fituflokkun mun meiri áhrif á verð en holdfylling.

Sauðfé: Flokkun og meðalverð í viku 34 – 35 í pdf skjali.

flokkun_og_medalverd2011v34og35
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Haustverð á folöldum

Hækkun á folaldakjöti til bænda. Nýtt verð er 375 kr/kg. fyrir alla flokka folaldakjöts og gildir þar til annað verður ákveðið. Ekki er gert ráð fyrir mismunandi verði eftir sláturtíma.

Flutningskostnaður eru óbreyttur 13,30 kr/kg. sem jafngildir u.þ.b. 1.000 kr. á 75 kg. folald.  Lágmarksgjald er 1.400 kr (gildir þegar flutt er minna en 108 kg.) og hámarksgjald m.v. 2.800 kg. innlegg í senn (u.þ.b. 37 folöld m.v. 75 kg. meðalvigt).

Folöld eru staðgreidd á föstudegi eftir innleggsviku.

Nánari upplýsingar í afurðaverðskrá.