21/12/2011 | SS Vörumerkið, Um SS
Saga SS vörumerkisins er mjög áhugaverð og er órjúfanlegur hluti af sögu eins elsta fyrirtækis landsins.
Í upphafi var merkið mjög lýsandi, kind með ör í gegn og SS stafina en einnig heitið “Sláturfélag Suðurlands”.
Í næstu gerð vörumerkisins voru heiti fyrirtækisins og kindin tekin í burtu en SS og örinni haldið eftir. Árið 1970 urðu höfuðið og kokkahúfan fyrst til sem notuð hafa verið með nokkrum endurbótum síðan.
Slagorðið „Gæðafæða bragðast bezt” var notað um langt árabil en frá árinu 1986 hefur slagorðið „Fremstir fyrir bragðið” verið notað.
“Fremstir fyrir bragðið” er mjög vel heppnað tvírætt slagorð sem innifelur staðfærslu og markmiðssetningu. Að vera fremstur fyrir bragðið er að vera leiðandi en vísar um leið til framúrskarandi bragðs sem er tenging við bragðgæði og gæði almennt.
Á þessu ári verður SS vörumerkið 105 ára gamalt á markaði. Það hefur alla tíð staðið fyrir gæði og traust og gerir það enn í dag bæði hjá þeim sem framleiða vörur undir þessu merki og hjá neytendum. Gæði og traust SS merkisins byggjast á reynslu og hefð sem hefur verið sköpuð og viðhaldið mann fram af manni og er með þjóðlega tilvísun vegna sögunnar.
SS merkið stendur því öðru fremur fyrir gæði, traust og þjóðlega hefð og er staðfært með þeim gildum. Af þeim sökum er notuð tenging við íslensk fjöll í útliti og umbúðum SS vara.
SS vörumerkið er eitt þekktasta innlenda vörumerkið á neytendamarkaði. Undir þessu vörumerki eru seldir margir leiðandi flokkar á markaði svo sem pylsur, álegg, grillkjöt, hangikjöt, hamborgarhryggur ofl.
Hér fyrir neðan má líta SS merkið á mismunandi tímum.
15/12/2011 | Fréttir 2011
Kýrin Týra í Hraunkoti í Skaftárhreppi mjólkar nú mest allra íslenskra kúa en nyt hennar síðustu 12 mánuði er 12.554 kg, sem er hreint frábær árangur. Þá vekur athygli að önnur kýr í Hraunkoti, Fríða er nú í fjórða sæti á listanum yfir nytjahæstu kýr landsins með 12.073 kg. Í Hraunkoti eru greinilega bara úrvalskýr því búið var með hæstu meðalnytina yfir öll íslensk kúabú lok nóvember eða 8.341 kg.
Ólafur Helgason og Sigurlaug Jónsdóttir hafa búið í Hraunkoti frá 1979. Þau eru með blandað bú, um 200 vetrarfóðraðar kindur og 16-20 kýr og svo kálfa og kvígur. Þau eru sérstaklega ánægð með árangur Týru. “Týra er á öðru mjaltaskeiði, mjólkaði 8.966 kg árið 2010. Þau hjón þakkar góðri meðalnyt á búinu fyrst og fremst góðu fóðri og þeirri vinnu sem þau hjón leggja til búsins. Ólafur og Sigurlaug hafa um árabil notað áburð frá Yara, ásamt búfjáráburði. Allt hey er verkað í rúllur. Ólafur segir að heyefnagreinig sé nauðsynleg til að meta fóðurþörf gripanna, og gera þau einnig fóðuráætlanir eftir Norfor kerfinu. Kúnum er síðan gefin kjarnfóður frá DLG í Danmörku sem SS flytur inn, er kallast Kúafóður 20. Þetta er fóðurblanda sem inniheldur 20% prótein og hentar vel hámjólka kúm með góðu heyi og heimaræktuðu byggi, en‚Ólafur segist einnig gefa kúnum heimaræktað bygg. Afurðahæstu kýrnar fá allt að 8 kg á dag af fóðurbæti, en dagsnytin getur verið um 40 kg. Þegar kýrnar bera, eykur hann enn kjarnfóðurgjöfina í ca. ½ mánuð. Þetta gerir hann til að hámarka nytjar kúnna með góðum árangri.
Það er greinilega vel hugsað um kýrnar í Hraunkoti, og má með sanni segja að þar sannast orðatiltækið „að fé er jafnan fóstra líkt“
Myndin er birt með leyfi dfs.is
15/12/2011 | styrktarbeiðnir, Um SS
Hér til hliðar er að finna umsóknareyðublað með styrktarbeiðni. Vinsamlega fyllið út alla reitina og að því loknu smellið á senda-hnappinn. Beiðnin mun þá berst markaðsdeild SS. Öllum umsóknum verður svarað með tölvupósti innan viku eftir að þær berast. Vinsamlegast fyllið út í þá reiti sem eru stjörnumerktir.
15/12/2011 | Félagsdeildir, Til bænda
Deild | Nafn | Heimili | Sími |
A-Eyjafjalladeild | Sigurður Sigurjónsson | Ytri-Skógum | 487 8832 |
A-Landeyjadeild | Rafn Bergsson | Hólmahjáleigu | 487 1185 |
Álftavers- og Meðallandsdeild | Guðbrandur Magnússon | Syðri-Fljótum | 898 0825 |
Árborgardeild | Björn Harðarson | Holti | 486 3407 |
Ása- og Djúpárdeild | Birkir Ármannsson | Brekku | 898 2464 |
Biskupstungnadeild | Kjartan Sveinsson | Bræðratungu | 486 8944 |
Borgarfjarðar- og Mýrardeild | Magnús Þór Eggertsson | Ásgarði | 435 1164 |
Daladeild | Kjartan Jónsson | Dunki | 434 1395 |
Dyrhóladeild | Einar Magnússon | Norður-Hvoli | 487 1251 |
Fljótshlíðar og Hvolhreppsdeild | Kristinn Jónsson | Staðarbakka | 487 8319 |
Gaulverjabæjardeild | Þorsteinn Ágústsson | Syðra-Velli | 486 3377 |
Gnúpverjadeild | Úlfhéðinn Sigurmundsson | Haga | 482 2929 |
Grímsnesdeild | Björn Snorrason | Björk 2 | 486 4476 |
Holta og Landmannadeild | Stefán Sigurðsson | Þjóðólfshaga | 487 5054 |
Hraungerðisdeild | Þormóður Ólafsson | Hjálmholti | 482 1082 |
Hrunamannadeild | Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir | Hrafnkelsstöðum I | 486 6687 |
Hvalfjarðardeild | Kristín Helga Ármannsdóttir | Ytra-Hólmi I | 431 1338 |
Hvammsdeild | Jónas Erlendsson | Fagradal | 487 1105 |
Hörglandsdeild | Jón Jónsson | Prestsbakka | 487 4754 |
Kirkjubæjardeild | Sverrir Gíslason | Kirkjubæjarklaustri 2 | 487 4888 |
Kjósardeild | Guðmundur H. Davíðsson | Miðdal | 566 6834 |
Laugardalsdeild | Friðgeir Stefánsson | Laugardalshólum | 486 1181 |
Rangárvalladeild | Guðmundur Ómar Helgason | Lambhaga | 487 5717 |
Skaftártungudeild | Guðgeir Sumarliðason | Austurhlíð | 487 1366 |
Skeiðadeild | Ingvar Hjálmarsson | Fjalli 2 | 486 5526 |
Snæfells- og Hnappadalsdeild | Ásbjörn Pálsson | Haukatungu-syðri | 435 6762 |
V-Eyjafjalladeild | Baldur Björnsson | Fitjamýri | 487 8923 |
Villingaholtsdeild | Einar Hermundsson | Egilsstaðakoti | 486 3344 |
V-Landeyjadeild | Brynjólfur Bjarnason | Lindartúni | 487 8537 |
Þingvalla- og Grafningsdeild | Halldór Kristjánsson | Stíflisdal | 848 9961 |
Ölfusdeild | Halldór Guðmundsson | Nautaflötum | 483 4473 |
Öræfadeild | Gunnar Sigurjónsson | Litla-Hofi | 478 1727 |
25/11/2011 | Markmið og stefna, Um SS
Smellið á mynd til að skoða ( Pdf skrá )
Stefna SS er að hafa á að skipa framúrskarandi fólki sem hefur metnað & ábyrgð sem þarf til að framleiða & selja öðrum matvæli & halda leiðandi stöðu. Og að skapa þessu fólki umgjörð til að það megi vaxa í starfi & njóta hæfileika sinna & fá sanngjarna umbun fyrir.