Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 17. mars 2023

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 17. mars 2023.

Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum:

Til setu í aðalstjórn
Guðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 Selfossi
Hallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 Akranesi
Lilja G. Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 301 Akranesi
Sverrir Gíslason, Kirkjubæjarklaustur 2, 880 Kirkjubæjarklaustri
Þorsteinn Logi Einarsson, Egilsstaðir 2, 803 Selfossi

Til setu í varastjórn
Áslaug Finnsdóttir, Hömrum, 371 Búðardal
Eiríkur Jónsson, Gýgjarhólskoti 1, 806 Selfossi
Guðmundur H. Davíðsson, Miðdal, 276 Mosfellsbæ
Gunnar Sigurjónsson, Litla-Hofi, 785 Öræfum
Magðalena K. Jónsdóttir, Drangshlíðardal, 861 Hvolsvelli

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn 17. mars 2023 að Goðalandi, Fljótshlíð kl. 15:00.

Aðalfundur SS framboð til stjórnar og varastjórnar 2023 á pdf. formi

 

Reykjavík, 24. febrúar 2023.

Sláturfélag Suðurlands svf.

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri – sími: 575 6000 – hjalti@ss.is

Dagskrá aðalfundar 17. mars 2023

Auglýsing aðalfundar SS

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund á pdf. formi

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 17. mars 2023 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.

Dagskrá:

1. Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.
2. Skýrsla stjórnar félagsins.
3. Starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
5. Skýrsla skoðunarmanna.
6. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
7. Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
8. Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
9. Kosin stjórn félagsins.
10. Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
11. Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
12. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.

Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 19,34% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 9,34% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 34.826.376,- eða 0,1934 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 7,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 27.537.844,- Arðleysisdagur er 20. mars og arðréttindadagur er 21. mars. Greiðsludagur arðs er 29. mars n.k.

Reykjavík, 16. febrúar 2023.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2022

Fréttatilkynning á pdf. formi með 5 ára yfirliti

Ársreikningur 2022 á pdf. formi

• Rekstrartekjur ársins 15.757 m.kr. en 13.023 m.kr. árið 2021
• 549 m.kr. hagnaður á árinu á móti 234 m.kr. hagnaði árið áður
• EBITDA afkoma var 1.467 m.kr. en 1.026 m.kr. árið 2021
• Eigið fé 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2022 var 549 m.kr. Árið áður var 234 m.kr. hagnaður. Betri markaðsaðstæður og aðgerðir sem gripið var til skýra bætta afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 49%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 15.757 m.kr. árið 2022, en 13.023 m.kr. árið áður og hækka því um 21%. Aðrar tekjur voru 88 m.kr. en 135 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 7.906 m.kr. en 6.316 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 3.984 m.kr. og hækkaði um tæp 11%, annar rekstrarkostnaður var 2.488 m.kr. og hækkaði um tæp 13%. Afskriftir hækkuðu um tæp 2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 978 m.kr., en 545 m.kr. rekstrarhagnaður árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.467 m.kr. en var 1.026 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 321 m.kr., en voru 260 m.kr. árið áður. Gengistap var 16 m.kr. samanborið við 4 m.kr. gengistap árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 19 m.kr.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 127 m.kr. en 59 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 549 m.kr. en 234 m.kr. hagnaður árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.452 m.kr. árið 2022 samanborið við 956 m.kr. árið 2021. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2022 voru 13.439 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%. Veltufjárhlutfall var 2,0 árið 2022, en 2,4 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 671 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 362 m.kr. árið áður. Seldar voru eignir fyrir 26 m.kr. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 206 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 359 m.kr. og bifreiðum 106 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2022 var í aprílmánuði greiddur 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 21 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag. Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS: www.ss.is
Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2023 þann 24. ágúst 2023.

Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 17. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 19,34% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 9,34%, alls 34,8 m.kr. eða 0,1934 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 7,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 27,5 m.kr.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 49% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,0. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 2.678 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 95 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 1.256 m.kr. og góður aðgangur að skammtímafjármögnun sé þess þörf.

Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 2.734 m.kr. eða um 21% vegna betri markaðsaðstæðna og aðgerða til að auka tekjur. Staðan á veitingamarkaði batnaði auk þess sem samstæðan styrkti stöðu sína á smásölumarkaði og sölu rekstrarvara til bænda. Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 316 m.kr.

Framleiðsla kjöts á landsvísu stóð í stað á árinu 2022 en sala jókst um 3,2%. Áhyggjuefni er áætlaður samdráttur í kindakjötsframleiðslu á komandi árum en afkoma bænda í greininni hefur verið slök og brýnt að hún verði bætt. Hækkanir á hrávörumarkaði hafa verið miklar einkum á áburði, kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum bænda. Mikilvægt er að stuðningur verði áfram við greinina til lengri tíma en annað getur haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.

Matvælaiðnaður félagsins stendur vel. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst verulega milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi aðila á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal
17. mars 2023 Aðalfundur 2022
24. ágúst 2023 Árshlutauppgjör jan-jún 2023
15. febrúar 2024 Ársuppgjör 2023
15. mars 2024 Aðalfundur vegna ársins 2023

 

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

Fjárhagsdagatal 2023

Fjárhagsdagatal 2023 – Sláturfélag Suðurlands

16. febrúar 2023          Ársuppgjör 2022

17. mars 2023              Aðalfundur vegna ársins 2022

24. ágúst 2023             Árshlutauppgjör jan-jún 2023

15. febrúar 2024          Ársuppgjör 2023

15. mars 2024             Aðalfundur vegna ársins 2023

Fréttabréf SS – 3. tbl. 2022

Búið er að greiða kr. 30 viðbótina á innlegg janúar – ágúst.   Viðbótin á sauðfjárinnlegg haustsins verður greidd 25. nóvember næstkomandi og viðbót á stórgripainnlegg september – desember verður greidd 20. janúar.

Þetta fréttabréf er öðru fremur helgað nýliðinni sauðfjársláturtíð.  Sláturtíðin gekk mjög vel og góður gangur var á sláturlínu.  Hvert stefnir kindakjötsframleiðslan?  Kjötmat og sjónmat á fitu?  Verðmæti matsflokka dilkakjöts.  Sláturkostnaður og áhrif fallþunga.  Sláturáætlun næsta hausts.

Það hefur verið í skoðun í nokkurn tíma að endurbyggja stórgripasláturhúsið á Selfossi og nokkrar tillögur verið settar fram um leiðir í þessu efni.

Enn ríkir óvissa um verðþróun og framboð á áburði fyrir komandi vertíð.  Yara hefur tryggt SS það magn sem félagið þarf svo ekki á að þurfa að óttast skort.

Þrjár nýjar vörur hafa komið á markað nýlega.  Nautaþynnur, forsteiktar raspaðar kótilettur á einungis 15-20 mínútum og óreykt beikon með ítölskum keim “Pancetta”.

Starfsfólkið á bak við SS.  Sigríður Erla Bjarnadóttir hóf störf árið 1971 og hefur fengið gullmerki SS.  Erla er einn af 350 starfsmönnum sem SS byggir á.

Fréttabréf SS 3. tbl. á pdf. formi.