Tillaga eigenda hluta í B-deild stofnsjóðs um greiðslu arðs á aðalfundi SS 20. mars 2015

 

Tillaga eigenda hluta í B-deild stofnsjóðs á aðalfundi 20. mars á pdf. formi

Tillaga eigenda hluta í B-deild stofnsjóðs um greiðslu arðs á aðalfundi 20. mars 2015
Borist hefur tillaga, dags. 5. mars 2015 frá eftirtöldum eigendum hluta í B-deild stofnsjóðs þar sem lagt er til við aðalfund Sláturfélags Suðurlands  að greiddur  verði 15% arður á höfuðstól hluta í B-deild stofnsjóðs auk 1% verðbótarþáttar vegna rekstrarársins 2014:

Festa lífeyrissjóður, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Sundagörðum 2, Reykjavík
Stafir lífeyrissjóður, Stórhöfða 31, Reykjavík
Steingrímur Aðalsteinsson, Álaþingi 10, Kópavogi

Samtals eiga framantaldir aðilar 38,18% í B-deild stofnsjóðs.

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn 20. mars 2015 að Goðalandi, Fljótshlíð kl. 15:00.

Reykjavík, 6. mars 2015.

Sláturfélag Suðurlands svf.

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri – sími: 575 6000 – hjalti@ss.is

Framboð til stjórnar og varastjórnar SS á aðalfundi 20. mars 2015

Aðalfundur SS framboð til stjórnar og varastjórnar á pdf. formi

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf.  á aðalfundi 20. mars 2015
Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr.  27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum:

Til setu í aðalstjórn
Guðmundur H. Davíðsson, Miðdal, 270 Mosfellsbæ
Hallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli II, 301 Akranesi
Jóhanna B. Ingólfsdóttir, Hrafnkelsstöðum I, 845 Flúðum
Kristinn Jónsson, Staðarbakka, 861 Hvolsvelli
Sigurlaug Jónsdóttir, Skerjavöllum 1, 880 Kirkjubæjarklaustri

Til setu í varastjórn
Aðalsteinn Guðmundsson, Húsatóftum II, 801 Selfossi
Björn Harðarson, Holti I, 801 Selfossi
Guðmundur Ó. Helgason, Lambhaga, 861 Hvolsvelli
Guðmundur Jónsson, Reykjum, 270 Mosfellsbæ
Ingibjörg Daníelsdóttir, Fróðastöðum, 320 Reykholti
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn 20. mars 2015 að Goðalandi, Fljótshlíð kl. 15:00.

Reykjavík, 5. mars 2015.

Sláturfélag Suðurlands svf.

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri – sími: 575 6000 – hjalti@ss.is

Dagskrá aðalfundar 20. mars 2015

Auglýsing aðalfundar SS

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund á pdf. formi

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2015 á Goðalandi  Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.

            Dagskrá:
                1.          Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.           
2.             Skýrsla stjórnar félagsins.
3.             Starfsemi félagsins á liðnu ári.
4.             Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
5.             Skýrsla skoðunarmanna.
6.             Tillaga stjórnar  um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
7.             Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
8.             Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
9.             Kosin stjórn félagsins.
10.          Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
11.          Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
12.          Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr.  27. gr. samþykkta félagsins. 
Tillögur:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 11% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 1% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 19.808.177,- eða 0,11 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 15.797.339,- Arðleysisdagur er 23. mars og arðréttindadagur er 24. mars. Greiðsludagur arðs er 17. apríl n.k.
Reykjavík, 24. febrúar 2015.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2014

Fréttatilkynning á pdf. formi með 5 ára yfirliti

Ársreikningur 2014 á pdf. formi

  • Tekjur ársins 10.628 m.kr. en 10.207 m.kr. árið 2013
  • 433 m.kr. hagnaður á árinu á móti 466 m.kr. árið áður
  • EBITDA afkoma var 950 m.kr. en 1.021 m.kr. árið 2013
  • Eiginfjárhlutfall 53% í árslok 2014 en 51% árið áður

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2014 var 433 m.kr. skv. rekstarreikningi. Árið áður var 466 m.kr. hagnaður. Eigið fé er 3.984 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 53%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 10.628 m.kr. árið 2014, en 10.207 m.kr. árið áður og hækka því um rúm 4%. Aðrar tekjur voru 24 m.kr. en 12 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 5.735 m.kr. en 5.348 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 2.296 m.kr. og hækkaði um tæp 6%, annar rekstrarkostnaður var 1.672 m.kr. og lækkaði lítillega. Afskriftir hækkuðu um tæp 6%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 638 m.kr., en 726 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 950 m.kr. en var 1.021 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 117 m.kr., en voru 176 m.kr. árið áður. Gengistap nam 13 m.kr. samanborið við 6 m.kr. árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 14 m.kr. en árið áður um 23 m.kr. Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 101 m.kr. en 106 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 433 m.kr. en 466 m.kr. árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 948 m.kr. árið 2014 samanborið við 1.006 m.kr. árið 2013. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2014 voru 7.455 m.kr. og eiginfjárhlutfall 53%, en 51% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,5 árið 2014, en 2,7 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 491 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 681 m.kr. árið áður. Á árinu var m.a. byggt 1.500 fermetra vöruhús í Þorlákshöfn undir áburð og lokið var við viðbyggingu á starfstöð félagsins á Selfossi auk fjárfestinga í vélbúnaði. Seldar voru eignir fyrir 5 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2014 var í aprílmánuði greiddur 13,7% arður af B-deild stofnsjóðs alls 25 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 18 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North hjá NASDAQ OMX. Viðurkenndir ráðgjafar félagsins (e. Certified Advisors) eru Ágúst H. Ólafsson og Árni Jón Árnason hjá Deloitte – first-north@deloitte.is. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2015 þann 25. ágúst 2015.

Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 20. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 11% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 1%, alls 19,8 m.kr. eða 0,11 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 15,8 m.kr.

Staða og horfur
Afkoma Sláturfélagsins hefur verið stöðug og góð undanfarin ár. Fjárhagsstaða félagsins er einnig mjög sterk með 53% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,5. Árleg greiðslubyrði lána er lág miðað við greiðslugetu félagsins og skuldahlutfall lágt.

Áhrif af vaxandi innflutningi á kjöti hafði neikvæð áhrif á rekstur afurðahluta félagsins á árinu 2014. Gert er ráð fyrir að svo verði áfram á árinu 2015.

Staða lykilvörumerkja SS í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins á markaði góð. Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði hafi neikvæð áhrif á afkomu kjötiðnaðar á árinu.

Matvöruhluti innflutningsdeildar og búvöruhluti innflutningsdeildar er vaxandi í starfsemi félagins. Sala á áburði, kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum bænda gengur vel og góð tækifæri til áframhaldandi vaxtar.

Fjárhagsdagatal
Aðalfundur 201520. mars 2015
Janúar - júní 2015 uppgjör25. ágúst 2015
Júlí - desember 2015 uppgjör18. febrúar 2016
Aðalfundur 201618. mars 2016

Frekari upplýsingar veitir :
Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

Dagatal 2015

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 20. mars 2015 á Goðalandi, Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.
Birtingaráætlun:
• Janúar – júní 2015 uppgjör, þann 25. ágúst 2015.
• Júlí  – desember 2015 uppgjör, þann 18. febrúar 2016.
Jafnframt er fyrirhugað að halda aðalfund vegna ársins 2015, föstudaginn 18. mars 2016.