Lækkun á afurðaverði hrossa

Markaðsaðstæður fyrir afsetningu hrossakjöts eru mjög erfiðar. Rússland og tengd lönd hafa verið helstu markaðir fyrir hrossakjöt sem ekki selst ferskt eða frosið innanlands eða í Evrópu. Innflutningsbann til Rússlands hefur leitt til birgðasöfnunar á hrossakjöti. Af þessum sökum lækkar verð til bænda á hrossakjöti frá og með 9. nóvember 2015.

Þrátt fyrir óvissu um afsetningu hrossaafurða verður vikuleg slátrun með eðlilegum hætti til að koma til móts við þörf bænda til að losna við hross.

Nánari upplýsingar í afurðaverðskrá.

Vörusala til bænda

Framleiðendum og innleggjendum býðst að kaupa vörur beint frá SS á hagstæðu verði. Á þetta við um allar framleiðsluvörur og innfluttar matvörur og gæludýravörur. Lágmarkspöntun er 15.000 krónur. Hægt er að fá vörurnar sendar með Flytanda á kostnað kaupanda eða sækja án kostnaðar á starfsstöðvar félagsins á Hvolsvelli, Selfossi og Reykjavík.

Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu félagsins og hafið samband við söludeild í síma 575 6060.

Fréttabréf SS haust 2015

Í fréttabréfinu er fjallað um afkomu félagsins á fyrri árshelmingi 2015 en afkoma félagsins var góð þrátt fyrir neikvæð áhrif verkfalla á afkomu samstæðunnar.

SS hyggst byggja 1500 fermetra vöruhús undir Yara áburð í Þorlákshöfn en að því loknu verður félagið með 3500 fermetra vöruhús undir áburð á lóð félagsins í Þorlákshöfn.

Kynntar eru breytingar í slátrun og vinnslu afuða á Selfossi en sífellt er þörf á breytingu á aðstöðu og búnaði til að mæta þörfum bænda, starfsmanna og kaupendum afurðanna. Í fréttabréfinu eru einnig myndir frá síðustu sláturtíð á Selfossi.

Í fréttabréfinu er komið inn á þróun afurðaverðs eftir tegundum frá árinu 2002 og fyrirkomulagi á slátrun og verðlagningu því tengdu. Einnig fjallað um nautgripaeldi og söluþróun. Í lokin eru upplýsingar um nýjar vörur.

Fréttabréf SS – vefútgáfa

Fréttabréf SS – á pdf formi

Sauðfé – afurðaverð

Verðlisti kindakjöts 2015

Sú breyting er gerð frá fyrra ári að álag í vikum 36, 37 og 38 er hækkað til að hvetja bændur til innleggs fyrr til að nýta megi sláturgetu betur og draga úr kostnaði við yfirvinnu síðar í sláturtíðinni, sjá nánar í verðlista hér að ofan. Stefnt er að því að slátra ekki á laugardögum sem gerir kröfu til betri nýtingar sláturgetu í upphafi og lok sláturtíðar. Mikilvægt er að bændur panti sem fyrst fyrir slátrun hjá deildarstjórum. Nýir innleggjendur eru velkomnir til félagsins en þeir verða að reikna með slátrun fyrri hluta sláturtíðar eða í lok hennar er hægt er að taka við meira innleggi.

Allt innlegg er staðgreitt föstudag eftir innleggsviku.

Pantanir fyrir slátrun
Mikilvægt er að bændur panti sem fyrst fyrir slátrun til að tryggja sér pláss. Skipulagning hefðbundinnar slátrunar er í höndum deildarstjóra og skal óskum um slátrun komið sem fyrst til þeirra. Einnig er hægt að hafa beint samband við sláturhúsið á Selfossi í  síma 480 4100.


Þjónustuslátrun
Þjónustuslátrun á sauðfé er miðvikudaginn 25 nóvember og miðvikudaginn 16. mars 2016.  Þessa sláturdaga verður greitt grunnverð sláturtíðar 2015.

Tekið er á móti sláturpöntunum í sláturhúsinu á Selfossi í síma 480 4100.

Heimtaka
Gjald fyrir heimtöku sem er minni en 400 kg á innleggjanda verður 190 kr/kg. 7 parta sögun  er innifalin.  Fyrir það magn af dilkum sem er tekið heim umfram 400 kg á innleggjanda er gjaldið 220 kr/kg. Fínsögun kostar aukalega 35 kr/kg.  Heimtaka á fullorðnu fé kostar 3200 kr/stk.

Afhending á Selfossi, Hvolsvelli og Fosshálsi er án kostnaðar og kostnaður af heimsendingum innan félagssvæðis SS er 50 kr/kg. Slátur fylgir ekki heimteknu kjöti. Sent verður með Flytjanda. Vsk bætist við ofangreindar tölur.

Fyrir sama gjald er boðið upp á frystingu á dilkakjöti og kjöti af fullorðnu en þá er ekki hægt að afhenda kjöt frá völdum býlum heldur er selt kjöt af sama gæðaflokki og beðið er um og getur verið frá öðrum. Frosið kjöt sem er selt sem heimtaka er afhent eftir innlegg eins og önnur heimtaka.

Vinsamlegast athugið að merkja við á heimtökublaðinu hvernig heimtakan á vera.  Einnig þarf að koma fram annað sem beðið er um svo sem fínsögun o.s.frv. Þessar upplýsingar verða að liggja fyrir slátrun.

Eyðublað vegna heimtöku sjá hér.

Móttaka á fullorðnum hrútum

Félagið býður í haust þá þjónustu að taka við fullorðnum hrútum til slátrunar til loka september svo fremi sem það komi ekki niður á dilkaslátrun. Ekki verður greitt fyrir fullorðna hrúta.

Fyrirvari er gerður um prentvillur !