Ný vara – hamborgarar á grillið

Nú eru komnir á markaðinn 100% nautakjötshamborgarar lausfrystir og 10 stk. saman í endurlokanlegum pokum. Hamborgararnir eru 90 gr. og eru frábærir á pönnuna eða grillið.  Það er tilvalið að eiga poka af hamborgurum í frysti til að geta gripið í með stuttum fyrirvara. 

hamborgarar10stk2

Eldunarleiðbeiningar:

Best er að taka hamborgarana úr frysti einni og hálfri klukkustund fyrir matreiðslu og elda þá í 1 og hálfa mínútu á hvorri hlið.

Það má líka taka þá beint úr frysti  en þá er eldunartími ca 2 mínútur á hvorri hlið.


Næringargildi í 100 gr.
Orka  1083/259kkal
Prótín    19   g
Kolvetni  0     g
Fita   20   g
Natríum  0,1  g