Sláturfélagið hefur ákveðið að hækka bændaverð á fullorðnum hrossum tímabundið um 10% og gildir það til loka september n.k. Þetta kemur til viðbótar 5% hækkun sem átti sér stað fyrr í sumar.
Eftir að afgreiðsludeild SS var flutt úr Reykjavík hefur verið unnið jafnt og þétt að því að bæta starfsemina og tryggja öruggar og réttar afhendingar. Í því skyni hefur verið tekið upp nýtt afgreiðslukerfi sem byggir á lestri strikamerkja á allri þeirri vöru sem er afgreidd.