Innköllun hlutabréfa – Rafræn skráning – Stofnun verðbréfareiknings

Sláturfélag Suðurlands svf. hefur ákveðið að öll útgefin hlutabréf (B-deild stofnsjóðs) í félaginu verði rafrænt skráð frá og með 17. apríl 2020. Frá þeim tíma eru hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu ógild. Sjá meðfylgjandi auglýsingu „Innköllun hlutabréfa“ sem hefur verið birt í Lögbirtingablaðinu og auglýst í dagblöðum.

Svo unnt sé að skrá bréfin rafrænt þarf hluthafi að eiga vörslureikning hjá fjármálastofnun sem er aðili að Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.  Það er nauðsynlegt til þess að eiga viðskipti með bréfin og taka við argreiðslum, en arður verður einungis greiddur í gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. eftir að bréfin hafa verið rafrænt skráð.

Leiðbeiningar til hluthafa :
.

  1. Tilkynna þarf til hluthafaskrár SS hjá hvaða fjármálafyrirtæki hluthafi á vörslureikning.
    Senda skal tölvupóst á netfangið
    hluthafaskrass@ss.is
    .
  2. Opnun vörslureiknings. Ef hluthafi á ekki vörslureikning hjá fjármálastofnun, t.d. verðbréfaþjónustu í viðskiptabanka sínum, er hægt að opna slíkan reikning í netbanka og/eða með því að mæta í næsta útibú síns viðskiptabanka.

Leiðbeiningar vegna dánarbúa :
.

  1. Dánarbú. Ef skráður eigandi er látinn þarf að koma eignarhaldinu á réttan erfingja/eiganda.   *Tilkynningu um breytt eignarhald skal senda til hluthafaskrár SS á netfangið hluthafaskrass@ss.is. Afrit af „Leyfi til setu í óskiptu búi“ eða „Umboð/heimild til að ráðstafa eða skipta búi“ þarf að fylgja með tilkynningu.  Í kjölfarið þarf að opna vörslureikning samanber hér að ofan.

*Eftir að hlutabréfin voru rafrænt skráð þann 20. apríl 2020 – sjá fréttatilkynningu – þá verða allar breytingar á eignarhaldi að fara í gegnum Nasdaq verðbréfamiðstöð sem veitir nánari upplýsingar.

Kaup og sala hlutabréfa
Verðbréfadeildir banka og fleiri aðilar sjá um kaup og sölu hlutabréfa.  Þjónustufulltrúar í bönkum veita upplýsingar og aðstoð.

Fyrirspurnir er hægt að senda á hluthafaskrass@ss.is.

Innköllun hlutabréfa

Nánari upplýsingar

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf., kt. 600269-2089 („SS“), gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 4. mgr. 13. gr. í samþykktum félagsins hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í B-deild stofnsjóðs verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. Stefnt er að skráning taki gildi föstudaginn 17. apríl 2020 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma eru hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu ógild í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.

Nánar tiltekið verða öll hlutabréf SS (B-deild stofnsjóðs) tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudagsetningar er getið á hverju bréfi.

Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá SS að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár SS, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík á netfangið hluthafaskrass@ss.is. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar.

Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997 um rafræna eignarskráningu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar í Lögbirtingablaði. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.

Stjórn SS hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er liðinn og rafræn skráning á ofangreindum hlutabréfum hefur átt sér stað í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf., sbr. heimild í 4. tölul. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000.

Hluthafar skulu fela reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu og stofna vörslureikning.

Reykjavík, 13. janúar 2020.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Dagatal 2020

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands sem halda átti föstudaginn 20. mars 2020 á Goðalandi er frestað um óákveðin tíma.

Sjá fréttatilkynningu

Þegar aðstæður skýrast og samkomubanni verið aflétt verður aðalfundur SS haldinn og hann auglýstur að nýju í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins.

 

Birtingaráætlun:
• Júl – des 2019 uppgjör, þann 20. febrúar 2020

• Jan – júní 2020 uppgjör, þann 20. ágúst 2020
• Júl – des 2020 uppgjör, þann 18. febrúar 2021

Jafnframt er fyrirhugað að halda aðalfund vegna ársins 2020, föstudaginn 19. mars 2021.

Afkoma á fyrri árshelmingi 2019

Fréttatilkynning á pdf. formi með 5 ára yfirliti

Árshlutareikningur jan-jún 2019 á pdf. formi

• Tekjur á fyrri árshelmingi 6.009 m.kr. og hækka um 2% milli ára.
• 57 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 81 m.kr. hagnaður árið áður.
• EBITDA afkoma var 406 m.kr. en 376 m.kr. árið áður.
• Eigið fé 5.311 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 52%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2019 var 57 m.kr. Á sama tímabili árið áður var 81 m.kr. hagnaður. Eigið fé Sláturfélagsins er 5.311 m.kr. í lok júní.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 6.009 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2019, en 5.881 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um rúm 2%. Aðrar tekjur voru 160 m.kr. en 25 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 3.110 m.kr. en 2.981 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 1.635 m.kr. og hækkaði um tæp 3%, annar rekstrarkostnaður var 1.017 m.kr. og hækkaði um 6% og afskriftir voru 235 m.kr. og hækka um tæp 12%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 171 m.kr., en 166 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 406 m.kr. en var 376 m.kr. á sama tíma í fyrra.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 109 m.kr., en voru 64 m.kr., á sama tímabili í fyrra. Reiknaður tekjuskattur nam 5 m.kr., en 21 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri tímabilsins var 57 m.kr. en 81 m.kr. á sama tímabili árið áður. Minni hagnaður skýrist af lakari afkomu dótturfélaga.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 398 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2019, samanborið við 375 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2018. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 10.218 m.kr. og eiginfjárhlutfall 52% en 59% árið áður. Veltufjárhlutfall var 1,9 á fyrri hluta ársins 2019, en 2,2 árið áður.

Í upphafi árs innleiddi samstæðan IFRS 16 um leigusamninga. Áhrif á liði rekstrarreiknings eru þau að afskriftir hækka um 15,4 m.kr. og vaxtagjöld hækka um 17,8 m.kr. en rekstrargjöld lækka um 27,4 m.kr. Í efnahagsreikning var færð 732,0 m.kr. leiguskuldbinding og nýtingarréttur leigueigna að fjárhæð 675,8 m.kr.

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2019 fyrir 193 m.kr. en 420 m.kr. á sama tímabili árið áður. Fjárfest var í fasteignum fyrir 31 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 162 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2019 var í aprílmánuði greiddur 13,26% arður af B-deild stofnsjóðs alls 24 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 17 m.kr.

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2019
með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2019 þann 20. febrúar 2020.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 52% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 1,9. Langtímaskuldir í lok júní 2019 voru 1.942 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 88 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma.

Afkoma Sláturfélagsins versnaði milli ára vegna lakari afkomu dótturfélaga. Gert er ráð fyrir að afkoma þeirra batni á síðari árshelmingi í kjölfar hagræðingaraðgerða sem unnið hefur verið að.

Gert er ráð fyrir að innflutningur á fersku kjöti hefjist um áramót og búast má við að það hafi neikvæð áhrif á innlenda kjötframleiðslu og afkomu afurðafélaga. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.

Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði. Samt sem áður er reiknað með erfiðum aðstæðum á kjötmarkaði á næstu árum.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sýna á markaði með nýjum vöruflokkum sem ganga vel. Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur.

Fjárhagsdagatal
Júlí – desember 2019 uppgjör 20. febrúar 2020
Aðalfundur 2020 20. mars 2020

Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

Niðurstöður aðalfundar 29. mars 2019

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf.     Hér á PDF. formi.

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 29. mars 2019 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð.

1. Ársreikningur
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2018.

2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykkt
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,26% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 3,26% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 23.877.857,- eða 0,13 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 17.672.512,- Arðleysisdagur er 1. apríl og arðréttindadagur er 2. apríl. Greiðsludagur arðs er 16. apríl n.k.

3. Kosning stjórnar
Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

Aðalmenn:
Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449
Kristinn Jónsson, varaformaður, kt. 020460-3939
Ingibjörg Daníelsdóttir, ritari, kt. 081254-5329
Guðrún S. Magnúsdóttir, kt. 270875-5729
Sverrir Gíslason, kt. 060469-4319

Til vara:
Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119
Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689
Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299
Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, kt. 260864-5489
Þorsteinn Logi Einarsson, kt. 221082-5169

4. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda
Löggiltur endurskoðandi:
Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

Skoðunarmenn:
Aðalmenn:
Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509
Jónas Erlendsson, kt. 230263-7369

Varaskoðunarmenn:
Finnur Pétursson, kt. 260662-2609
Ragnar Lárusson, kt. 141057-4569

5. Laun stjórnar og skoðunarmanna
Stjórnarformaður kr. 1.349.000,- á ári.
Meðstjórnendur kr. 674.000,- á ári.
Skoðunarmenn kr. 177.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 177.000,- á ári.