Fréttabréf mars 2014 – 2,7% í viðbót

Komið er út nýtt fréttabréf sem eingöngu er gefið út sem vefrit.

Í bréfinu er fjallað um afkomu liðins árs og 2,7% viðbót á afurðaverð ársins 2013 sem SS mun greiða inn á bankareikninga bænda í lok mars. Samtals verða 50,4 mkr. greiddar til bænda.

Einnig er fjallað um nautaeldi og tilraun sem SS er að hefja í samstarfi við Dlg og að síðustu eru svipmyndir frá síðustu sláturtíð.

Fréttabréfið á pdf formi.

Fréttabréfið má einnig sjá á eftirfarandi vefslóð:

Fréttabréf mars 2014 – 2,7% viðbót

Komið er út nýtt fréttabréf sem eingöngu er gefið út sem vefrit.

 

Í bréfinu er fjallað um afkomu liðins árs og 2,7% viðbót á afurðaverð ársins 2013 sem SS mun greiða inn á bankareikninga bænda í lok mars. Samtals verða 50,4 mkr. greiddar til bænda.

 

Einnig er fjallað um nautaeldi og tilraun sem SS er að hefja í samstarfi við Dlg og að síðustu eru svipmyndir frá síðustu sláturtíð.

 

Fréttabréfið á pdf formi.

 

Fréttabréfið má einnig sjá á eftirfarandi vefslóð:

 

http://www.isafold.is/vefblod//ss_frettabref_2014

Jón Þorsteinsson kjötmeistari Íslands

Jón Þorsteinsson verkstjóri vöruþróunar SS hlaut einnig verðlaun fyrir athyglisverðustu nýjung keppninnar “Salamí camenberti” sem jafnframt hlaut titlana “Besta varan unnin úr hrossa- eða folaldakjöti” og “Besta hráverkaða varan”.  Þá hlaut vara Jóns ” Grísa Rillette” viðurkenningu Svínaræktarfélags Íslands sem besta varan unnin úr svínakjöti. Fyrirkomulagið er þannig að allar vörur hljóta í upphafi fullt hús stiga eða 50 stig.  Dómarar leita síðan að öllum hugsanlegum göllum og við hvern galla sem finnst fækkar stigum.  Með öðrum orðum þýðir árangur Jóns að hann skilaði inn 5 gallalausum vörum í keppnina um Kjötmeistarann.

Fimm kjötiðnaðarmenn  frá SS, þeir  Hrafn Magnússon, Steinar Þórarinsson, Björgvin Bjarnason, Bjarki Freyr Sigurjónsson og Jón Þorsteinsson sendu samtals 19 vörur inn í keppnina.  Hlutu þeir fjórtán gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.  Því hlutu 90% innsendra vara verðlaun og þar af 75% gullverðlaun. Auk þess féllu í þeirra skaut fimm sérverðlaun auk hins eftirsótta titils Kjötmeistara Íslands.

• Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49-50 stig og vera nánast gallalaus.
• Til þess að fá silfurverðlaun þarf varan að hafa 46-48 stig og má aðeins vera með lítilsháttar galla.
• Til þess að fá bronsverðlaun þarf varan að hafa 42 til 45 stig.

Árangur einstakra manna er sem hér segir:

*Jón Þorsteinsson
Kjötmeistari Íslands fullt hús stiga  250 stig.
 Athyglisverðasta nýjung keppninnar Salami camemberti
Besta vara unnin úr hrossa- eða folaldakjöti Salami camemberti
Besta hráverkaða varan   Salami camemberti
Besta vara unnin úr svínakjöti  Grísa Rillette
Átta gullverðlaun    Hangikjet, Sölpylsur, Katalónskar Bratwurstpylsur, Grísa Rillette,
Hreindýra lifrarkæfa, Salami Camemberti, Bolabiti og purupopp
Ein silfurverðlaun   Bökuð nautalifrarkæfa

*Steinar Þórarinsson
 Besta varan unnin úr alifuglakjöti  Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi
Fern gullverðlaun    Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi, Lifrarpylsa,
Blóðpylsa með jarðarberjakeim og Grafið grísafile.

*Hrafn Magnússon
 Ein silfurverðlaun   Púrtvíns salamí

*Björgvin Bjarnason
 Tvenn gullverðlaun   Lamba spægipylsa og Veiðipylsa

*Bjarki Freyr Sigurjónsson
 Ein bronsverðlaun   Chili stubbar

Daníel Ingi Hrafnsson kjötiðnaðarnemi tók þátt í sérstakri nemakeppni í matvælagreinum.  Þar var ekki raðað nema í fyrsta sæti, en hann stóð sig með miklum ágætum og fékk að launum viðurkenningu keppninnar.

Það er í senn heiður og ánægja að hafa slíka ofurfagmenn í okkar annars vaska og metnaðarfulla fagmannahópi.
Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum þetta árangursríka framlag til eflingar fagmennsku og gæða hjá okkur og Íslenskum kjötiðnaði í heild.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri, Steinar Þórarinsson, Bjarki Freyr Sigurjónsson, Jón Þorsteinsson og Björgvin Bjarnason með verðlaunagripi sína.
Á myndina vantar feðgana Hrafn Magnússon og Daníel Inga Hrafnsson. (Ljósm. ÖRS)
hopur_heimasidan_1

 

 

Niðurstöður aðalfundar 21. mars 2014

Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi 21. mars 2014.  Hér á pdf formi.

 

1.  Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,7%  arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 3,7% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 24.670.184,- eða 0,14 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 18.036.426,-  Arðleysisdagur er 24. mars og arðréttindadagur er 26. mars.  Greiðsludagur arðs er 15. apríl n.k.

 

2.  Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins:

 

Tillaga að nýrri málsgrein neðst í 14. gr. samþykkta SS:

Stjórn félagsins er heimilt að ákveða úthlutun hluta tekjuafgangs sem viðbót á afurðaverð til félagsmanna enda standi nægar eftirstöðvar eftir að lokinni ráðstöfun tekjuafgangs og uppfyllt ákvæði samkvæmt samþykktum þessum og ákvörðunum aðalfundar um arðgreiðslur til félagsmanna í A-deild og eigenda hluta í B-deild.

Tillaga að nýrri 27. gr. samþykkta SS:

Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. Í aðalstjórn skal hlutfall hvors kyns fyrir sig ekki vera lægra en 40%.

 

Stjórn skal auglýsa með opinberum hætti eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar með lok framboðsfrests þremur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjör fer fram. Stjórn skal tilkynna aðalfundarfulltrúum með auglýsingu eða dreifibréfi (rafpósti) um hverjir eru frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar ekki síðar en tveimur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjörið fer fram. Á félagsfundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá, er ávallt heimilt að tilnefna fólk til stjórnarstarfa sem ekki er á auglýstum framboðslista allt þar til sjálf kosningin fer fram.

Allir aðalstjórnarmenn skulu kosnir á sama tíma og varastjórnarmenn með sama hætti eftir að kjöri aðalstjórnar er lokið. Hver fulltrúi á félagsfundi þar sem stjórnarkjör fer fram getur greitt einum til fimm frambjóðendum til stjórnar atkvæði sitt. Þeir stjórnarmenn sem flest atkvæði hljóta skulu réttkjörnir til stjórnarstarfa næsta kjörtímabil með þeirri undantekningu þó, að skili kosningin ekki réttum hlutföllum hvors kyns fyrir sig í aðalstjórn til samræmis við ákvæði 1. mgr., þá skulu atkvæðaflestu frambjóðendur til aðalstjórnar af gagnstæðu kyni sem hallar á við stjórnarkjörið, taka sæti í stjórn, einn eða tveir, eins og nauðsynlegt er til að lögmætu hlutfalli milli kynjanna verði náð, og þar með víkja þeim frambjóðendum til aðalstjórnar af gagnstæðu kyni sem þó hafa hlotið fleiri atkvæði við stjórnarkjörið.

 

Ef aðalmaður deyr, gengur úr félaginu eða víkur úr stjórninni á löglegan hátt, áður en kjörtíminn er liðinn, tekur sá varamaður sæti til fulls í hans stað sem flest atkvæði fékk í kjöri varastjórnar. Enginn félagsmaður getur skorast undan kosningu í stjórn félagsins, nema um jafnmörg ár og hann hefur næst áður verið í stjórninni og með samþykki hans má endurkjósa hann í stjórn.

 

Félagsstjórnin velur árlega formann og varaformann úr sínum flokki.

 

Ákvæði til bráðabirgða:

Ef tillaga þessi verður samþykkt, þá felur hún það í sér að bundinn er endir á kjörtímabil allra stjórnarmanna félagsins, bæði aðal- og varamanna, óháð hversu langt er eftir af kjörtímabili þeirra samkvæmt eldri ákvæðum samþykktanna. Kosin verður ný stjórn í kjölfar samþykktar tillögunnar, allir aðal- og varamenn, til eins árs.

 

3.  Kosning stjórnar. 

Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

 

Aðalmenn:

Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449

Sigurlaug Jónsdóttir, varaformaður, kt. 170657-2099

Kristinn Jónsson, ritari, kt. 020460-3939

Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119

Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, kt. 140745-3329

 

Til vara:

Aðalsteinn Guðmundsson, kt. 010552-2069

Björn Harðarson, kt. 011059-3769

Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689

Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879

Ingibjörg Daníelsdóttir, kt. 081254-5329

 

4.  Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda.

Löggiltur endurskoðandi:

Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

 

Skoðunarmenn:

Aðalmenn:

Ásbjörn Sigurgeirsson, kt. 200752-2529

Bjarni Jónsson, kt. 300952-3649

 

Varaskoðunarmenn:

Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509

Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299

 

5. Laun stjórnar og skoðunarmanna.

Stjórnarformaður kr. 1.133.000,-  á ári.

Meðstjórnendur kr.  566.500,-  á ári.

Skoðunarmenn kr. 149.000,- á ári.

Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 149.000,-  á ári.