Vegna mjög villandi fyrirsagnar á forsíðu Bændablaðsins frá 24. apríl s.l. mætti draga þá ályktun að SS upprunamerkti ekki kjötvörur.

Af þessu tilefni er rétt að árétta að SS upprunamerkir allar kjötvörur. Bæði hreinar kjötvörur eins og áskilið er í lögum og einnig allar samsettar vörur, sem er ekki lagaskylda, en SS upprunamerkir eftir sem áður. SS telur mjög mikilvægt að neytendur séu upplýstir um uppruna kjöts og notar fánarönd til frekari aðgreiningar á allar þær vörur sem eingöngu innihalda íslenskt kjöt.