SS var skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX 11. júlí 2011 en hafði áður verið skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. SS fylgir því lögum og reglum sem sem snúa að fyrirtækjum sem skráð eru á First North markaðnum.

Deloitte hf. er viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser) SS en gerð er krafa um að félög skráð á First North markaðnum hafi viðurkenndan ráðgjafa sem starfar sem ráðgjafi félagsins meðan á skráningarferlinu stendur og eftir að því er lokið. Deloitte hf. þekkir vel til félagsins þar sem Deloitte hf. hefur annast endurskoðun SS.

Stjórn SS telur mikilvægt að félagið sé skráð á markaði og First North markaðurinn henti félaginu vel. Skráning SS á First North markaðnum styrkir þá ímynd sem SS vill viðhalda gagnvart viðskiptavinum, félagsmönnum, starfsmönnum og eigendum hlutabréfa félagsins.