Jón Þorsteinsson verkstjóri vöruþróunar SS hlaut einnig verðlaun fyrir athyglisverðustu nýjung keppninnar “Salamí camenberti” sem jafnframt hlaut titlana “Besta varan unnin úr hrossa- eða folaldakjöti” og “Besta hráverkaða varan”.  Þá hlaut vara Jóns ” Grísa Rillette” viðurkenningu Svínaræktarfélags Íslands sem besta varan unnin úr svínakjöti. Fyrirkomulagið er þannig að allar vörur hljóta í upphafi fullt hús stiga eða 50 stig.  Dómarar leita síðan að öllum hugsanlegum göllum og við hvern galla sem finnst fækkar stigum.  Með öðrum orðum þýðir árangur Jóns að hann skilaði inn 5 gallalausum vörum í keppnina um Kjötmeistarann.

Fimm kjötiðnaðarmenn  frá SS, þeir  Hrafn Magnússon, Steinar Þórarinsson, Björgvin Bjarnason, Bjarki Freyr Sigurjónsson og Jón Þorsteinsson sendu samtals 19 vörur inn í keppnina.  Hlutu þeir fjórtán gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.  Því hlutu 90% innsendra vara verðlaun og þar af 75% gullverðlaun. Auk þess féllu í þeirra skaut fimm sérverðlaun auk hins eftirsótta titils Kjötmeistara Íslands.

• Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49-50 stig og vera nánast gallalaus.
• Til þess að fá silfurverðlaun þarf varan að hafa 46-48 stig og má aðeins vera með lítilsháttar galla.
• Til þess að fá bronsverðlaun þarf varan að hafa 42 til 45 stig.

Árangur einstakra manna er sem hér segir:

*Jón Þorsteinsson
Kjötmeistari Íslands fullt hús stiga  250 stig.
 Athyglisverðasta nýjung keppninnar Salami camemberti
Besta vara unnin úr hrossa- eða folaldakjöti Salami camemberti
Besta hráverkaða varan   Salami camemberti
Besta vara unnin úr svínakjöti  Grísa Rillette
Átta gullverðlaun    Hangikjet, Sölpylsur, Katalónskar Bratwurstpylsur, Grísa Rillette,
Hreindýra lifrarkæfa, Salami Camemberti, Bolabiti og purupopp
Ein silfurverðlaun   Bökuð nautalifrarkæfa

*Steinar Þórarinsson
 Besta varan unnin úr alifuglakjöti  Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi
Fern gullverðlaun    Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi, Lifrarpylsa,
Blóðpylsa með jarðarberjakeim og Grafið grísafile.

*Hrafn Magnússon
 Ein silfurverðlaun   Púrtvíns salamí

*Björgvin Bjarnason
 Tvenn gullverðlaun   Lamba spægipylsa og Veiðipylsa

*Bjarki Freyr Sigurjónsson
 Ein bronsverðlaun   Chili stubbar

Daníel Ingi Hrafnsson kjötiðnaðarnemi tók þátt í sérstakri nemakeppni í matvælagreinum.  Þar var ekki raðað nema í fyrsta sæti, en hann stóð sig með miklum ágætum og fékk að launum viðurkenningu keppninnar.

Það er í senn heiður og ánægja að hafa slíka ofurfagmenn í okkar annars vaska og metnaðarfulla fagmannahópi.
Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum þetta árangursríka framlag til eflingar fagmennsku og gæða hjá okkur og Íslenskum kjötiðnaði í heild.

hopur_heimasidan_1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri, Steinar Þórarinsson, Bjarki Freyr Sigurjónsson, Jón Þorsteinsson og Björgvin Bjarnason með verðlaunagripi sína. Á myndina vantar feðgana Hrafn Magnússon og Daníel Inga Hrafnsson. (Ljósm. ÖRS)