Heimtaka: Í boði er að leggja inn slög og hálsa af heimteknum dilkum til greiðslu á hluta af heimtökukostnaði. Til einföldunar verður annað hvort að leggja alla hálsa og slög af heimteknum dilkum inn í hvert skipti sem lagt er inn eða ekkert. Ef allir hálsar og slög eru innlögð lækkar heimtökugjald sbr. neðangreint. Merkja verður á heimtökublað ef bóndi vill leggja slög og háls inn á móti hluta heimtökugjalds.

Heimtökublað 2020

Vinsamlega athugið að ekki er hægt að taka heim skrokka eftir númerum. Ef bændur vilja taka valda gripi heim þarf að merkja þá á haus fyrir flutning í sláturhús.

Gjald í haust fyrir heimtöku og 7 parta sögun er tvískipt. Fyrir magn sem er minna en 15 stk á innleggjanda er gjaldið 4000 kr/stk en á það magn sem er frá 16 – 80 stk er gjaldið 5150 kr/stk. Ef slög og hálsar eru lögð inn verður þetta gjald annars vegar 3450 kr/stk og hins vegar 4600 kr/stk á magn umfram 16 – 80 stk. Fyrir magn umfram 80 stk reiknast verktakagjald sem fer eftir fjölda og þyngd. Heimtaka á fullorðnu fé kostar 4400 kr/stk. Fínsögun kostar aukalega 820 kr/stk.

Vinsamlega athugið að fullorðnir hrútar verða aðeins teknir til slátrunar þá daga sem sláturtími er laus. Í boði er að taka þá heim gegn 5500 kr/stk heimtökugjaldi. Ef þeir eru ekki teknir heim þá reiknast slátur- og urðunargjald 7000 kr/stk.

Afhending á Selfossi, Hvolsvelli og á Fosshálsi er án kostnaðar. Kostnaður af heimsendingum innan félagssvæðis SS er 80 kr/kg. Sent verður með Flytjanda. Slátur fylgir ekki heimteknu kjöti.

Virðisaukaskattur bætist við framangreindar fjárhæðir.

Bændum stendur til boða að kaupa frosið dilkakjöt með afslætti í sláturtíð en ekki er um að ræða heimtöku á innleggi viðkomandi bónda.