Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði 10%  arður af B-deild stofnsjóðs, alls 20 milljónir og reiknaðir 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 12 milljónir.  Arður af B-deild stofnsjóðs verður greiddur út eigi síðar en 6. maí 2005.  Greiðsla arðsins miðast við hlutafjáreign við upphaf aðalfundardagsins 8. apríl 2005.