Fréttatilkynningin í heild ásamt 5 ára yfirliti í pdf skjali (13,5 kb)


Afkoma ársins 2001
Rekstrartap Sláturfélags Suðurlands á árinu 2001 var 59 milljónir króna, en 91 milljón króna hagnaður var á árinu áður. Lakari afkoma stafar af hækkun fjármagnsgjalda, lægri framlegð af vörusölu, hækkun launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar milli ára. Rekstrarárið einkenndist af mikilli samkeppni sem leiddi til fækkunar aðila í slátrun og í kjötiðnaði en afkoma beggja greina var óviðunandi á árinu. Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er þó áfram traust með eigið fé tæpar 1.185 milljónir og 41% eiginfjárhlutfall.

Rekstrartekjur Sláturfélags Suðurlands og dótturfélags voru 3.468 milljónir á árinu 2001, en 3.097 milljónir á árinu 2000. Velta samstæðunnar jókst um 12% frá fyrra ári.

Rekstrargjöld án afskrifta námu 3.252 milljónum samanborið við 2.794 milljónir árið áður og aukast um 16% milli ára. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 147 milljónir en 136 milljónir árið 2000. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 70 milljónir, en var 167 milljónir árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 124 milljónir en á árinu á undan 68 milljónir. Hækkun fjármagnsgjalda skýrist fyrst og fremst af hærri vöxtum, 73 milljón króna gengistapi sem var árið áður 40 milljónir og 25 milljón króna gjaldfærslu vegna niðurfærslu hlutabréfa í eigu félagsins.

Tap af reglulegri starfsemi var 55 milljónir, en 99 milljón króna hagnaður var árið áður. Með sköttum og hagnaði hlutdeildarfélags var tap af rekstri Sláturfélags Suðurlands 59 milljónir en 91 milljón króna hagnaður var árið áður.

Veltufé frá rekstri var á árinu 160 milljónir samanborið við 269 milljónir árið áður.

Í árslok 2001 voru heildareignir Sláturfélags Suðurlands og dótturfélags 2.925 milljónir og höfðu hækkað 404 milljónir frá fyrra ári. Skammtímaskuldir voru 895 milljónir, langtímaskuldir voru 845 milljónir og eigið fé 1.185 milljónir. Eiginfjárhlutfall í lok ársins 2001 var 41% en var 47% á sama tíma árið áður. Veltufjárhlutfall var 1,3 í árslok 2001 en var 2 í árslok 2000. Arðsemi eiginfjár rýrnaði að raunvirði um 5% á árinu 2001, en arðsemi ársins 2000 var 8%. Unnin ársverk á árinu 2001 voru 340 en 339 árið áður.

Ársreikningurinn er gerður sem samstæðureikningur Sláturfélags Suðurlands og SS Afurða sem Sláturfélagið er 100% eigandi að. Hann er gerður í meginatriðum eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag. Prentaður ársreikningur verður tilbúinn til dreifingar eigi síðar en 15. mars n.k., jafnframt því sem hægt verður að nálgast hann á heimasíðu félagsins.


Helstu atriði úr rekstri
Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir alls 161 mkr. á árinu. Vegna fasteigna var varið 52 milljónum, 95 milljónum til kaupa á framleiðsluvélum og tækjum, aðallega fyrir kjötvinnslu á Hvolsvelli og 14 milljónir vegna bifreiða.

Á árinu voru seldir fastafjármunir fyrir 16 milljónir. Fjárfesting í eignarhlutum í félögum nam 58 milljónum, aðallega vegna Guldfoss A/S og Ísfugls ehf. Guldfoss A/S kjötvinnsla félagsins í Videbæk í Danmörku hóf rekstur í byrjun apríl s.l. Megináhersla er lögð á framleiðsluvörur úr íslensku lambakjöti í neytendapakkningum ásamt marineruðu svínakjöti, en markmið með rekstri félagsins er að vinna íslensku lambakjöti aukinn markað í Danmörku og nálægum löndum auk þróunar til alhliða kjötvinnslu á seinni stigum.

Í janúar s.l. var gengið frá kaupum á 37,5% hlut í kjötvinnslufyrirtækinu Ferskum kjötvörum ehf.. Sláturfélagið mun á næstu þremur árum kaupa 20% hlut til viðbótar og eignast þar með 57,5% hlut í fyrirtækinu.

Mikil áhersla hefur verið á vöruþróun undanfarin ár og árið 2001 var engin undantekning. Stefna félagsins er að 10% af sölu hvers árs í kjötiðnaði komi frá nýjum framleiðsluvörum.

Sláturfélagið flytur inn vörur frá þekktum og leiðandi fyrirtækjum. Innflutningsdeild félagsins hefur vaxið á undanförnum árum og náð góðum árangri við markaðssetningu einstakra vörutegunda, má þar nefna m&m sælgæti, Barilla pasta, Uncle Ben´s hrísgrjón og sósur, og krydd frá McCormick. Einnig flytur Sláturfélagið inn áburð frá Norsk Hydro.


Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 5. apríl n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að ekki verði greiddur arður af nafnverði hluta í B-deild stofnsjóðs né að reiknaðir verði vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs.


Horfur á árinu 2002
Afkoma félagsins á árinu 2001 var óviðunandi og einkenndist af mikilli verðsamkeppni sem hafði neikvæð áhrif á afkomu félagsins, auk gengistaps og kostnaðarhækkana. Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er þó sterk, jafnframt því sem markaðshlutdeild félagsins er að vaxa á kjötmarkaðnum í kjölfar rekstrarerfiðleika helstu keppinauta.

Stefna félagsins er að vera leiðandi matvælafyrirtæki á heildsölustigi. Vel útbúin kjötvinnsla félagsins á Hvolsvelli skapar félaginu möguleika til að auka sölu unninna kjötvara innanlands og ný kjötvinnsla í Danmörku skapar sóknarfæri í sölu á íslensku lambakjöti í neytendapakkningum erlendis. Fækkun sláturhúsa félagsins, ásamt endurbótum sem gerðar hafa verið hafa skapað grundvöll fyrir góða nýtingu þeirra og hagkvæms rekstrar sem nýttur verður enn betur á komandi árum. Innflutningsdeild með leiðandi vörumerki styrkir jafnframt samkeppnishæfni félagsins. Á næstu árum verður unnið að frekari uppbyggingu Sláturfélagsins þannig að það geti áfram sinnt hlutverki sínu sem leiðandi matvælafyrirtæki.

Gert er ráð fyrir að áfram verði mikil samkeppni í slátrun og kjötiðnaði, en stöðugleiki aukist á næstu mánuðum í efnahagslífinu. Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða til að draga úr útgjöldum auk þess sem fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum verða dregnar saman á árinu. Gert er ráð fyrir að framangreindar aðgerðir og aðstæður á markaði muni leiða til bættrar afkomu Sláturfélagsins á árinu.



Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000.

Reykjavík, 7. febrúar 2002
Sláturfélag Suðurlands svf.