Verðskrá fyrir innlagt sauðfé haustið 2013 á pdf formi.

Í fréttabréfi 25. júlí 2013 er að finna nánari upplýsingar.    Fréttabréf SS 25. júlí 2013 – vefrit  

Allt innlegg er staðgreitt föstudag eftir innleggsviku. 

Slátrun hefst miðvikudaginn 21. ágúst.  Mikilvægt er að bændur panti sem fyrst fyrir slátrun til að tryggja sér pláss. Skipulagning hefðbundinnar slátrunar er í höndum deildarstjóra og skal óskum um slátrun komið sem fyrst til þeirra. Einnig er hægt að hafa beint samband við sláturhúsið á Selfossi í  síma 480 4100.

Þjónustuslátrun og vetrararslátrun

Þjónustuslátrun á sauðfé er miðvikudaginn 26. mars 2014.

Tekið er á móti sláturpöntunum í sláturhúsinu á Selfossi í síma 480 4100. 
  
Heimtaka
Greitt er fast gjald pr. stk fyrir slátrun. Gjaldið er 2.870 kr/dilk og 3.030 kr/fullorðið og er 7 parta sögun innifalin í gjaldinu fyrir þá sem það vilja. Auk þess er boðin fínsögun og kostar hún aukalega 680 kr/stk. Afhending á Selfossi, Hvolsvelli og Fosshálsi er án kostnaðar og kostnaður af heimsendingum innan félagssvæðis SS er 660 kr/stk. Sent verður með Flytjanda. Vsk bætist við ofangreindar tölur. Nánari upplýsingar um heimtöku er að finna í fréttabréfi.

Vinsamlegast athugið að merkja við á heimtökublaðinu
 hvernig heimtakan á vera.  Einnig þarf að koma fram annað sem beðið er um svo sem fínsögun o.s.frv. Þessar upplýsingar verða að liggja fyrir slátrun.

Eyðublað vegna heimtöku sjá hér. 

Gjaldtaka fyrir heimtöku er fyrir sláturkostnaði og er hugsuð sem búbót fyrir bændur til eðlilegrar heimanotkunar.  Ef bændur óska eftir að taka meira heim er um verktökuslátrun að ræða sem verður metin hverju sinni hvort hægt er að verða við og hvernig hún verður verðlögð.  

Fyrirvari er gerður um prentvillur !