Ákveðið hefur verið að greiða uppbót, 9 kr/kg, á dilka sem lagðir voru inn til SS síðasta haust.Greitt verður inn á bankareikninga bænda 18. apríl næstkomandi.
 
Verðskrá fyrir innlagt dilkakjöt var ákveðin í júlí síðastliðinn. Verðþróun erlendis hefur verið til hækkunar og gengi íslensku krónunnar hefur verið hagstætt fyrir útflutning. Meðal skilaverð fyrir útflutning er því nokkru hærra en áætlað var við verðákvörðun. Af þessari ástæðu hefur verið ákveðið að greiða uppbót á innlagða dilka.