Kjötiðnaðarmenn Sláturfélags Suðurlands gerðu það gott á norrænni fagkeppni kjötiðnaðarmanna, sem haldin var í Herning í Danmörku um helgina. Sendar voru 18 vörur og fengust 11 verðlaun, 3 gullverðlaun, 5 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Oddur Árnason vann Norðurlandameistaratitil fyrir létta lifrarkæfu.

Eftirtaldir unnu til verðlauna:

Jón Þorsteinsson, gullverðlaun fyrir Búrfellspylsur og silfurverðlaun fyrir Hestakost.
Björgvin Bjarnason, bronsverðlaun fyrir Búrfells pylsur.
Viktor Steingrímsson, silfurverðlaun fyrir Koníaksgrafinn grísahryggvöðva og bronsverðlaun fyrir Grand Orange grísapylsu.
Benedikt Benediktsson, silfurverðlaun fyrir léttreyktan lambageira.
Jóhann Gunnar Guðmundsson, gullverðlaun fyrir Grísalifrarkæfu og bronsverðlaun fyrir Hátíðarpaté.
Thorvald Smári Jóhannsson, silfurverðlaun fyrir Hrossasultu.
Oddur Árnason, gullverðlaun og Norðurlandameistaratitil fyrir Létta lifrarkæfu og silfurverðlaun fyrir Kindakæfu.

Við óskum þessum félögum okkar innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim sem tóku þátt í keppninni fyrir okkar hönd fyrir dugnað, metnað og elju við undirbúning og þátttöku.

Með þessum árangri hafa kjötiðnaðarmenn okkar enn og aftur verið fagi sínu og fyrirtæki til mikils sóma og þannig sannað að fagmennska og metnaður er sá drifkraftur sem til þarf til að geta ávallt talist fremstir fyrir bragðið.