Fréttatilkynning frá SS um birgðir lambakjöts

Undanfarna daga og vikur hafa komið fram fullyrðingar um að lambakjöt skorti á innanlandsmarkaði  og neytendur geti ekki keypt kjöt þar sem það sé ekki á boðstólum í verslunum. Jafnframt hefur verið gefið í skyn að umræddur skortur sé að einhverju leyti tilbúinn þar sem sláturleyfishafar ætli að sitja á birgðum og selja þær síðar á hærra verði eða sem unna vöru fyrir jól.

Af þessum sökum vill Sláturfélagið árétta að engin skortur er á lambakjöti hjá félaginu og verslanir geta fengið alla vöruliði sem SS framleiðir í neytendapakkningum úr lambakjöti eins og þarf. Það er því engin ástæða til að láta þessar vörur vanta í verslanir.
 
Það er forgangsmál hjá SS að sinna innanlandsmarkaði og hefur félagið haldið eftir kjöti í samræmi við söluáætlanir og stöðvað útflutning vegna góðrar sölu innanlands.

Félagið hefur jafnframt deilt til annarra kjötvinnsla og sláturleyfishafa mörgum tugum tonna af kjöti undanfarið til að stuðla að því að markaðnum væri sinnt. Sláturfélagið verður birgðalaust í lok þessa mánaðar og engu kjöti verður haldið eftir sem hægt væri að selja.

Markaðnum verður því sinnt þó einhverjir aðilar hafi takmarkað framboð.
 

Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason í s. 575 6000 / 893 696

Fréttatilkynningin á PDF formi.