Hollt & Gott

Störf í boði hjá Hollt & Gott

 

StarfLýsing
Almenn umsókn - Hollt og Gott

Hollt og Gott er alltaf að leita að góðu starfsfólki til fjölbreyttra starfa.

Sækja um
PODANIE O PRACĘ - Hollt og gott

Holt og gott cały czas poszukuje dobrych pracowników na różne stanowiska. Wszystkich zainteresowanych zachęcamy do aplikowania o pracę.

Wniosek
Job application - Hollt og gott

Hollt og gott is always looking for good employees for various jobs. We encourage all interested parties to apply.

Apply
Framleiðslustjóri hjá Hollt og Gott

Hollt og Gott ehf. leitar að öflugum einstaklingi til að taka við starfi framleiðslustjóra félagsins. Um spennandi og krefjandi starf er að ræða þar sem reynir meðal annars á hæfni til sköpunar,  skipulags- og samskipta.

Framleiðslustjóri ber ábyrgð á allri framleiðslu og daglegum rekstri hennar sbr. innkaup á aðföngum og starfsmannahaldi, vöruþróun og koma vörum á markað í samstarfi við söludeild.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun sem nýtist í starfi, reynsla á sviði matvælaiðnaðar er kostur

Skipulagshæfileikar, nákvæmni og lausnamiðuð hugsun

Reynsla af framleiðslustjórnun og starfsmannahaldi

Mikil hæfni í mannlegum samskiptum

Mikill faglegur áhugi, hæfni til nýsköpunar

Þekking á LEAN er kostur

Verkefnastjórnun vöruþróunar

Góð tölvukunnátta

 Starfslýsing

Annast daglega stjórnun vinnslu og gerð framleiðsluáætlana

Skipulagning framleiðslu og  starfsmannahald

Kostnaðareftirlit vara

Birgðastjórnun skipulag innkaupa hráefnis, umbúða og rekstrarvara

Vöruþróun

Áætlanagerð og stefnumótun vinnslu

Framfylgja faglegum vinnubrögðum í vinnslu,  gæðakerfi og gæðastefnu

Þátttaka í stefnumótun.

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ögmundur R, framkvæmdastjóri Hollt og Gott,  ogmundur@hollt.is

Hollt & Gott ehf. var stofnað árið 1995. Fyrirtækið hefur frá upphafi sérhæft sig í fullvinnslu á fersku grænmeti, ferskum salatblöndum, niðurskornum ávöxtum, brauðsalötum og sósum. Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru jafnt fyrir neytendamarkað og stóreldhús ásamt vörum og hráefni fyrir salatbari í verslunum og fyrirtækjum.

Hjá Hollt & Gott starfa að jafnaði um 35 manns við framleiðslu, dreifingu og sölu. 

Hollt & Gott ehf. leggur metnað sinn í að standa undir þeirri ábyrgð að tryggja viðskiptavinum vörugæði í samræmi við væntingar svo og að tryggja neytendum öruggar matvörur.

 

 

Sækja um