Mánudaginn, 13. desember s.l. lauk sauðfjárslátrun þessa árs í sláturhúsinu á Selfossi. Slátrað var 106.039 kindum á móti 111.820 kindum árið 2003. Er það fækkun um u.þ.b. 5% milli ára.

Slátrun sundurliðast þannig:
Páskaslátrun, 18. og 19. mars, 1.571 kind,
Sumarslátrun, 29. júlí til 12. sept. 16.914 kind
Haustslátrun, 13. sept. til 29. okt 66.311 kind
Vetrarslátrun, 1. nóv. til 13. des. 21.243 kind

Meðalvigt dilka var 15,0 kg. Innvigtað magn var 1663 tn. á móti 1759 tn. árið á undan og var innlegg 1601 tn. og heimtaka 62 tn.

Til gamans má geta þess að til að sækja þetta fé til bænda hafa verið eknir 113 þús. km. í 529 ferðum sem gerir u.þ.b. 214 km. í ferð. Að meðaltali voru fluttar 200 kindur í ferð og því ekinn rúmur 1 km. á kind.

Til að slátra og vinna afurðirnar til geymslu og útflutnings hafa verið notaðar u.þ.b. 53.600 þúsund vinnustundir, sem eru tæp 25 mannár og gerir það að meðaltali 1/2 klst. á kind.

Á árinu voru gerðar miklar og velheppnaðar endurbætur í stöðinni og m.a. tekin í notkun viðbygging sem gjörbreytir aðstöðu fyrir í pökkun og vinnslu á kjöti til útflutnings, auk þess mjög rýmkar um aukinn umsvif frystihússins.

Eins og áður hafa afköst og vinnubrögð í húsinu á Selfossi verið góð og fólk lagt sig fram um að láta hlutina gerast. Sérstaklega var niðurstaða úr USA skoðun ánægjuleg og gaman að verða vitni að þeiri samheldni og samstöðu sem skapaðist í stöðinni við undirbúning skoðunarinnar.

Um leið og ég óska öllum gleðilegra jóla sendi ég mínar bestu hamingjuóskir og þakkir fyrir velheppnaða sláturtíð á Selfoss.

Á meðfylgjandi mynd sjást fallegar afurðir í kjötsal.