Slátrun og flokkun dilka í liðinni viku, þ.e. 27. sept. – 3. okt. 2009 sýna að meðalþyngd er nánast sú sama og í sömu viku í fyrra. Holdfylling er hins vegar heldur betri og fita minni. Sé flokkunin fyrir bæði árin reiknuð í gegnum verðtöfluna 2009 er meðalverð 2009 3 kr/kg hærra en fyrra ár.

Slátrun gengur vel en slátrun á laugardögum hefur verið hætt og því verður slátrunin að dreifast yfir lengri tíma.

Nánari upplýsingar um slátrun og flokkun 27. sept. – 3. okt. 2009 ásamt samanburði við sömu viku 2008.