Friðrik Eysteinsson hefur verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri SS.  Friðrik er 46 ára gamall og með BS og MBA gráður frá University of Minnesota í Bandaríkjunum.  Hann hefur unnið við margvísleg störf sem tengjast sölu- og markaðsmálum.  Friðrik var m.a. framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Vífilsfells á árunum 1998 – 2002.