Kjötmeistarar SS fara mikinn þegar kemur að vöruþróun og töfra fram dýrindis nýjungar í áleggsflokknum.   Á markað eru komnar 2 nýjar áleggstegundir, annars vegar spægipylsa með pesto og hins vegar franskt salamí. 

Spægipylsa með pesto
Komin er á markað spægipylsa með pesto.  Stórar og mjúkar sneiðarnar bráðna í munni og keimurinn af pestóinu leikur við bragðlaukana án þess að yfirgnæfa spægipylsubragðið.  Varan er sérlega glæsileg og sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er.
Þessi pylsa er himnasending fyrir alla unnendur úrvalsáleggs og sér í lagi þurrpylsa.  Hún er tilvalin á snitturnar eða smurbrauðið og hægt er að leika sér með hana á forréttardiskinum.
Spægipylsa með pesto fæst í öllum helstu matvöruverslunum landsins.  Hún hreinlega bíður eftir þér. 

Franskt salamí
Og enn önnur nýjungin, salamí kryddað á franska vísu.  Það er sérlega milt og gott og hentugt með ostum og kexi, sniðugt í ýmsa brauð- og pastarétti, en einnig virkilega gómsætt eitt og sér. 
Franska salamíið er spennandi nýjung og kærkomin viðbót fyrir alla unnendur þurrpylsna.  Það fæst í öllum helstu matvöruverslunum landsins og bíður þar eftir þér.  Ekki gleyma að kippa franska salamíinu með !