Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 27. mars 2026 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð.
- Ársreikningur
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2025.
- Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykkt
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,70% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 3,70% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 27.405.043,- eða 0,1370 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 18,70% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 92.025.148,- Arðleysisdagur er 30. mars og arðréttindadagur er 31. mars. Greiðsludagur arðs er 7. apríl n.k.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,70% arður af A-deild stofnsjóðs, alls 67,4 m.kr. Miðast er við stöðu félagsmanna í A-deild 31. desember 2025.
Í þeim tilfellum sem arðgreiðsla til einstakra félagsmanna í A-deild er lægri en 10 þ.kr. eða bankaupplýsingar eru ekki fyrir hendi leggst arðgreiðslan við stofnreikning hjá viðkomandi félagsmanni hafi hann ekki óskað eftir útgreiðslu arðsins og veitt fullnægjandi bankaupplýsingar fyrir greiðsludag arðs. Greiðsludagur arðs er 7. apríl n.k.
- Kosning stjórnar
Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:
Aðalmenn:
Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449
Guðrún S. Magnúsdóttir, kt. 270875-5729
Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, kt. 260864-5489
Sverrir Gíslason, kt. 060469-4319
Þorsteinn Logi Einarsson, kt. 221082-5169
Til vara:
Eiríkur Jónsson, kt. 140465-5429
Erna Hjaltadóttir, kt. 090401-2970
Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299
Magðalena Karlotta Jónsdóttir, kt. 010865-3449
Þórdís Ingunn Björnsdóttir, kt. 260697-3239
4. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda
Löggiltur endurskoðandi:
Deloitte hf., Dalvegi 30, 201 Kópavogur
Skoðunarmenn:
Aðalmenn:
Finnur Pétursson, kt. 260662-2609
Jónas Erlendsson, kt. 230263-7369
Varaskoðunarmenn:
Ingibjörg Harðardóttir, kt. 020371-4639
Ragnar Lárusson, kt. 141057-4569
- Laun stjórnar og skoðunarmanna
Stjórnarformaður kr. 2.882.000,- á ári.
Meðstjórnendur kr. 1.440.000,- á ári.
Varastjórn kr. 106.500,- fyrir hvern fund
Skoðunarmenn kr. 270.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd (stjórnarmaður) kr. 270.000,- á ári.