Á stjórnarfundi SS 12. desember síðastliðinn var samþykkt að ráðstafa til bænda, umfram það sem þegar hefur verið gert, 100 mkr. greiðslu sem viðbót sem skiptist hlutfallslega á allt afurðainnlegg ársins 2025.
Þessar 100 mkr. nema um 3,4% ofan á það sem þegar hefur verið greitt fyrir afurðainnlegg liðins árs. Greiðsludagur er 23. janúar næstkomandi.
Auk þessa var samþykkt að leggja fyrir aðalfund tillögu um að greiða 15% vexti auk verðbóta á A deild stofnsjóðs. Tillagan er því að greiða 15% raunvexti ofan á stöðu A deildar um áramót sem var um 492 mkr.
Auk þessa var samþykkt að leggja til framlag 10 mkr/ári í tvö ár til bænda við stuðning við notkun á kyngreindu sæði í ungneytarækt. Einnig var samþykkt að leggja til framlag 10 mkr./ári í tvö ár við stuðning við notkun á rafrænum merkjum í sauðfé. Eftir er að útfæra hvernig stuðningur við kyngreint sæði og rafræn merki í sauðfé verður.
Við þetta má bæta að SS hefur tilkynnt Mast að félagið sé tilbúið að styðja upptöku á norsku aðferðinni við kjötmat með 10 mkr. styrk miðað við að hún verði tekin upp næsta haust.
Með þessu vill félagið sýna í verki að hagur þess og bænda fer saman og félagið er í eigu bænda og fyrir bændur.
Hægt er að lesa tilkynninguna í heild sinni með að nota hlekkinn hér fyrir neðan.