Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna var haldinn í tengslum við sýninguna Matur 2004 í Kópavogi.

Fyrirkomulag keppninnar er þannig að menn senda inn vöru með nafnleynd til dómarahóps, sem dæmir vörurnar eftir faglegum gæðum hennar. Hver keppandi má senda inn allt að 10 vörur til keppninnar. Allar vörur byrja með fullt hús stiga eða 50 stig. Með þessu fyrirkomulagi geta margar vörur haft gull, silfur eða bronsverðlaun. Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49 til 50 stig og vera nánast gallalaus. Vörur með 46 til 48 stig og aðeins lítilsháttar galla fá silfurverðlaun og vörur með 42-45 stig fá bronsverðlaun. Vörur með minna en 42 stig fá ekki verðlaun.

Úrslit voru kynnt, sunnudaginn, 29. febrúar. Vörur í keppninni voru 170 og fengu 123 vörur verðlaun, eða 72%. Þar af fengu 22% innsendra vara gullverðlaun, 27% silfurverðlaun og 24% bronsverðlaun.

Kjötiðnaðarmenn Sláturfélags Suðurlands náðu glæsilegum árangri. Hrepptu þeir 13 gullverðlaun, 13 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun. Alls hlutu þeir því 33 verðlaun fyrir 35 innsendar vörur. Hlutfallslegur árangur er mjög góður, þ.e. 94% innsendra vara fengu verðlaun, 37% gull, 37% silfur og 20% brons.

Jóhann Gunnar Guðmundsson, hafnaði í öðru sæti í keppninni um Kjötmeistara Íslands. Auk þess hlaut hann sérstök verðlaun Landssambands kúabænda fyrir Kálfapaté með rifsberjahlaupi, besta áleggið úr nautakjöti. Jón Þorsteinsson, hlaut sérstök verðlaun Kjötframleiðenda hf. fyrir Öl-Krás, bestu vöruna unna úr hrossa- eða folaldakjöti og jafnframt hlaut Jón sérstök verðlaun fyrir athyglisverðustu nýjung keppninnar, Víkingakæfu.

Önnur úrslit urðu sem hér segir:

https://www.ss.is
Nafn Gull Silfur Brons
Jóhann Gunnar Guðmundsson Kálfapaté m/rifsberjahlaupi, Ítalskt alpapaté, Beikonpaté, Þorgeirsboli. Sveitapiltsins draumur, Kofakræsing. Grísarúllupylsa, Grísasulta, Einbúinn ágjarni.
Ingólfur Baldvinsson Bratwurstpylsur Lifrarpylsa, Lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi
Jón Þorsteinsson Bratwurstpylsur,
Öl-Krás
Víkingakæfa,
Búr pylsur
Viktor Steingrímsson Trölli, Bratwurstpylsur, Grafinn nautavöðvi Birkireykt hunangsrúlla, Ostapylsur Grafinn grísavöðvi
Jens Sigurðsson Bratwurstpylsur Búr pylsur
Benedikt Benediktsson Bratwurstpylsur Pepperoni búðingur
Steihttps://www.ss.isnar Þórarinsson Nautalifrarkæfa
Björgvin Bjarnason Bratwurstpylsur Kindahttps://www.ss.iskæfa
Oddur Árnason Ungnautakæfa, Léttreykt svínalifrarpylsa
Örn Hauksson Bratwurstpylsur Lifrarbúðingur