Í fréttabréfinu er fjallað um sláturtíðina í haust, gekk hún vel en slátrað var 87.475 dilkum og 10.020 fullorðnu fé, samtals samtals 97.495 kindum sem er aukning um 4,3% á milli ára.
Óvissa um sláturáætlun 2026 vegna fækkunar sláturhúsa, verður aftur auglýst þannig að bændur geti pantað innlegg.
Fjallað er um hvert kindakjötsframleiðsla stefnir.
Einnig er fjallað um kjötmat haustsins og fyrri ára.
SS hefur fest verð á fóðri til lengri tíma þegar það er talið ráðlegt. Verð á fóðri hefur verið óbreytt frá því í september 2023 og hefur verið fest til loka ágúst 2026. Fram kemur að Yara áburður hefur hækkað að jafnaði um 7% á milli ára vegna aðstæðna t.d. vegna CBAM. Bændur eru hvattir til að tryggja sig með kaupum á áburði sem fyrst.
Í fréttabréfinu er einnig komið inn á stöðuna á kjötmarkaði, vöruþróun og nýjungar hjá SS. Í lokin er kynning á einum af fjölmörgum starfsmönnum félagsins.