Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi  Holtum, föstudaginn 31. mars  2006 og hefst kl. 14:00.  

Dagskrá:

1.  Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 

2.  Tillaga að breytingu á 1. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins.

3.  Tillaga um sameiningu deilda.

4.  Önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.

Reykjavík, 14. mars 2006. 
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.