by Hjalti H. Hjaltason | 18/07/2022 | Bændafréttir, Fréttabréf, Fréttir 2022
SS birti verðskrá kindakjöts 14, júní. Það á eftir að koma í ljós hvert endanlegt innleggsverð verður í haust en stefna SS er að greiða samkeppnishæft verð og skila hluta af rekstrarhagnaði sem viðbót á afurðaverð.
Óvissa er á mörkuðum fyrir áburð og aðstæður gætu enn versnað. SS þarf að meta það á næstu vikum hvort ástæða sé til að flýta innflutningi áburðar til að draga úr áhættu á hugsanlegum skorti.
Sala á kindakjöti hefur gengið vel og allt bendir til þess að birgðastaða í upphafi sláturtíðar í haust verði í sögulegu lágmarki.
Í lok mars voru samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) stofnuð en fagna ber þessum áfanga. SAFL munu beita sér í öllum helstu hagsmunamálum landbúnarins.
Í vor kom ný vara á markað, úrvals grillpylsur undir vöruheitinu ,,Nýjung meistarans” sem verður breytt á tveggja mánaða fresti sem gefur neytendum kost á fjölbreytni undir sama vöruheiti. Önnur nýjung er rifjahluti lambahryggs án hryggjarsúlu sem þægilegt er að grilla.
Emilia Dabrowska hefur unnið hjá SS frá árinu 2000 en í lokin er stutt kynnig í fréttabréfinu á þessum frábæra starfsmanni.
Fréttabréf SS 2.tbl. á pdf formi.
by Hjalti H. Hjaltason | 14/06/2022 | Bændafréttir, Fréttir 2022, Til bænda
SS hefur ákveðið að hækka meðalverð samkvæmt verðskrá fyrir innlagt dilkakjöt um 23% frá fyrra ári og á fullorðnu um 12% miðað við flokkun á innleggi síðast liðið haust. Yfirborganir í upphafi og lok sláturtíðar vega 3,2% á heildarinnlegg dilka. Að þessum yfirborgunum meðtöldum þá mun SS greiða að meðaltali 661 kr/kg fyrir innlagt dilkakjöt í haust. Eins og áður eru töluverðar yfirborganir í upphafi sláturtíðar.
Allt innlegg verður staðgreitt eins og verið hefur.
Nánari upplýsingar um verðskrá, greiðslutíma, heimtöku og aðra þætti sem lúta að sauðfjárslátrun er að finna hér.
by Hjalti H. Hjaltason | 28/02/2022 | Bændafréttir, Fréttabréf
Afkoma SS var góð á árinu 2021 en móðurfélagið skilaði sinni bestu afkomu í 115 ára sögu félagsins. Starfsmönnum, bændum og viðskiptavinum er þakkaður góður árangur. Fjárhagsstaða SS er góð, en stefna félagsins er að miðla hluta af afkomu til félagsmanna. Í janúar voru greiddar 84 m.kr. til félagsmanna, sem 5% viðbót á allt afurðainnlegg ársins 2021.
Matarsóun og umhverfismál eru í forgangi hjá félaginu. Unnið er að því í samstarfi við verslanir og aðra viðskiptavini að minnka vöruskil, en SS endurgreiddi verslunum 160 m.kr. vegna vöruskila á síðasta ári. Breytt viðhorf neytenda og aukin umhverfisvitund mun leiða til jákvæðra breytinga í þessum efnum.
SS er að ná góðum árangri í sorpflokkun en í stefnu félagsins kemur fram mikil áhersla á umhverfismál. Miklar framfarir voru í matvælaiðnaði í þessum efnum á síðasta ári.
Afurðaverð nautgripa hækkaði 28. febrúar. Betri flokkar voru hækkaðir en slökustu flokkarnir undir 200 kg lækkaðir. Þetta er í takt við verðbreytingu í lok ágúst. SS er að greiða samkeppnishæft verð fyrir nautgripi, auk þess ein afurðastöðva, að greiða 5% viðbót á allt nautgripainnlegg ársins 2021.
Áburður hefur hækkað gríðarlega frá fyrra ári. Ástandið í Úkraníu er að auka enn á óvissuna. SS hefur lagt sig fram um að lágmarka eins og hægt er verð á áburði. Verð á Yara einkorna áburði er í mörgum tilvikum lægra en á fjölkorna áburði. SS hefur auk þess vegna styrkingar krónu lækkað áburðarverð um rúmlega 5% frá fyrri verðskrá. Vegna þeirrar óvissu sem nú ríkir í Úkraníu hefur SS nú þegar hafið flutning á áburði til landsins en fyrsta áburðarskipið losaði áburð í vörugeymslu félagsins í Þorlákshöfn í síðustu viku. Búið er að loka samningum um fjóra skipsfarma í mars og byrjun apríl.
Þeir fjölmörgu bændur sem nota Dolemit Mg-kalk eru farnir að sjá verulegan árangur og ávinning með betri nýtingu á áburði og bættu gróffóðri. Jarðvegssýni eru farin að sýna mjög jákvæða þróun en á árinu 2021 voru 54% jarðvegssýna með pH gildi yfir 5,5 en einungis 23% árið áður. Kalk hefur ekki hækkað í verði eins og áburður og því mikill hagur að kalka til að draga úr áburðarnotkun og lækka kostnað. Dolemit Mg-kalk er í boði frá helstu höfnum landsins, og verktakar til staðar, en í vor verður þjónustan aukin enn frekar þar sem kalkdreifurm verður fjölgað um tvo.
SS er eitt elsta fyrirtæki landsins, stofnað 28. janúar árið 1907. Í fórum félagsins eru margir merkilegir hlutir en nýlega kom í ljós 5 punda lóð með merki Kristjáns 5. Danakonungs.
Í fréttabréfi 2021 – 2. tbl. var reifuð sú hugmynd að greiða álag á þyngri dilka. Farið er yfir helstu forsendur sem styðja tillögu að slíkri útfærslu.
Farið er yfir stöðuna á kjötmarkaði og innflutning til landsins á kjöti á árinu 2021. Oft er því haldið fram að innflutningurinn sé óverulegur en svo er í raun ekki.
SS fékk nýlega afhenta glæsilega Scania vörubifreið sem nýtist til flutninga á búvörum til bænda og tilfallandi flutninga á kæli og frystivörum. Komið er inn á vörunýjungar auk þess sem farið er yfir langan og farsælan starfsferil Níels Hjaltasonar deildarstjóra gæðaeftirlits.
Fréttabréf SS 1. tbl. 2022 á pdf formi.
by Hjalti H. Hjaltason | 26/01/2022 | Bændafréttir, Frettir, Til bænda
Í fréttabréfinu er fjallað ítarlega um Yara áburð og Dolimit Mg-kalk.
Nánari upplýsingar á yara.is