Samstæðureikningur hefur verið uppfærður vegna rangra samanburðatalna árið 2024.
- Rekstrartekjur ársins 19.311 m.kr. en 17.748 m.kr. árið 2024.
- 1.086 m.kr. hagnaður á árinu á móti 872 m.kr. hagnaði árið 2024.
- EBITDA afkoma var 1.869 m.kr. en 1.685 m.kr. árið 2024.
- Eigið fé 9.297 m.kr. og eiginfjárhlutfall 60%.
Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.
Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2025 var 1.086 m.kr. Árið áður var 872 m.kr. hagnaður. Aukin sala allra megin deilda, aðhald í innkaupum og starfsmannakostnaði, lækkun fjármagnsgjalda og aukning fjármagnstekna skýra betri afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 9.297 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 60%.
Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 19.311 m.kr. árið 2025, en 17.748 m.kr. árið áður og hækka því um 8,8%. Aðrar tekjur voru 196 m.kr. en 113 m.kr. árið áður.
Vöru- og umbúðanotkun var 9.308 m.kr. en 8.677 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 4.890 m.kr. og hækkaði um 6,3%, annar rekstrarkostnaður var 3.439 m.kr. og hækkaði um 18,7%. Hækkun annars rekstrarkostnaðar skýrist aðallega af viðhaldsframkvæmdum á árinu. Afskriftir fastafjármuna og nýtingarréttar hækkuðu um 3,2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 1.301 m.kr., en 1.135 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.869 m.kr. en var 1.685 m.kr. árið áður.
Fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld voru 30 m.kr., en hlutfallið var neikvætt um 50 m.kr. árið 2024. Bæting milli ára skýrist af góðri ávöxtun lausafjár og hagstæðri langtímafjármögnun. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 8,8 m.kr. Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 255 m.kr. en 217 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 1.086 m.kr. en 872 m.kr. hagnaður árið áður.
Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.817 m.kr. árið 2025 samanborið við 1.684 m.kr. árið 2024. Heildareignir samstæðu Sláturfélagsins þann 31. desember 2025 voru 15.438 m.kr. og eiginfjárhlutfall 60% en 59% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,8 árið 2025, en 2,6 árið áður.
Fjárfest var á árinu fyrir 638 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 645 m.kr. árið áður. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 137 m.kr., og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 501 m.kr.
Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2025 var greiddur 14,77% arður af B-deild stofnsjóðs alls 29,5 m.kr. að frádregnum arði af eigin bréfum félagsins og reiknaðir 14,77% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 64,1 m.kr.
Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag. Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS: www.ss.is
Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2026 þann 20. ágúst 2026.
Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 20. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 13,7% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 3,7%, alls, 27,4 m.kr. eða 0,1370 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 18,7% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 92,2 m.kr.
Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 60% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,8. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 1.994 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 52 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 2.913 m.kr.
Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 1.563 m.kr. eða um 8,8%. Útflutningur dróst saman á lambakjöti. Verð á áburði til bænda lækkaði sem dró úr veltu á innflutningsvörum en magnaukning bætti það upp. Afkoma Sláturfélagsins batnaði milli ára um 214 m.kr.
Framleiðsla kjöts á landsvísu minnkaði um 0,9% milli áranna 2024 og 2025 en sala jókst um 1,5% í kílóum talið. Samdráttur í kindakjötsframleiðslu nam 2,5% á árinu 2025 samanborið við 5,0% árið áður en sala jókst um 15,8% á milli ára, sem er ánægjulegt. Það lítur út fyrir að samdráttur í framleiðslu kindakjöts fari minnkandi en það er áfram mikilvægt að stuðningur verði áfram við kindakjötsframleiðsluna til lengri tíma. Annað getur haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.
Matvælaiðnaður félagsins stendur vel og styrkti stöðu sína á árinu 2025. Á árinu var haldið áfram að fjárfesta í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á matvælamarkaði.
Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst talsvert milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi framleiðendur á sínu sviði.
Fjárhagsdagatal
20. mars 2026 Aðalfundur vegna ársins 2025
21. ágúst 2026 Árshlutauppgjör jan-jún 2026
22. febrúar 2027 Ársuppgjör 2026
20. mars 2027 Aðalfundur vegna ársins 2026
Frekari upplýsingar veitir:
Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Sveinn Rafn Eiðsson, fjármálastjóri í síma 575 6000 – sveinnrafn@ss.is