Fréttatilkynningin í heild ásamt 5 ára yfirliti á pdf (11 kb )


Afkoma á 1. ársfjórðungi ársins 2002
Rekstrartap Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til mars 2002 var 8,5 milljónir, en árið áður 36,1 milljón. Bætt afkoma stafar fyrst og fremst af lækkun fjármagnsgjalda vegna gengishækkunar krónunnar. Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með eigið fé 1.184 milljónir og 40% eiginfjárhlutfall.

Rekstrartekjur Sláturfélags Suðurlands voru 837 milljónir á fyrstu þremur mánuðum ársins 2002, en 689 milljónir á sama tíma árið áður og aukast um tæp 22%.

Rekstrargjöld án afskrifta námu 811 milljónum samanborið við 668 milljónir árið áður og aukast um rúm 21%. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 38 milljónir en 34 milljónir árið 2001. Rekstrartap var tæpar 12 milljónir, en 14 milljónir króna árið áður.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um tæpar 12 milljónir en neikvæðir á árinu á undan 19 milljónir. Lækkun fjármagnsgjalda skýrist fyrst og fremst af 22 milljóna gengishagnaði en gengistap var árið áður rúmar 10 milljónir.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var neikvæð um 6 milljónir og tap fyrir skatta 6 milljónir en árið áður 34 milljónir. Skattar voru rúmar 2 milljónir. Tap af rekstri tímabilsins var 8,5 milljónir en 36,1 milljón árið áður.

Veltufé frá rekstri var tæpar 17 milljónir fyrstu þrjá mánuði ársins 2002, samanborið við 12 milljónir fyrir sama tímabil árið 2001.

Í lok mars 2002 voru heildareignir Sláturfélags Suðurlands 2.954 milljónir og höfðu hækkað um 501 milljónir frá fyrra ári. Skammtímaskuldir voru 860 milljónir, langtímaskuldir voru 910 milljónir og eigið fé 1.184 milljónir. Eiginfjárhlutfall var 40% í lok mars s.l. og veltufjárhlutfall 1,3

Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 21 milljón og eignarhlutum í félögum fyrir 89 milljónir. Eignir voru seldar fyrir tæpar 5 milljónir.

Sláturfélagið birtir í fyrsta skipti 3 mánaða árshlutareikning með samanburði við fyrra ár. Fylgt er sömu reikningsskilaaðferðum og í fyrra. Árshlutauppgjörið er með könnunaráritun endurskoðanda, en ekki árið áður.


Horfur á árinu 2002
Afkoma félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins 2002 var óviðunandi og einkenndist af mikilli verðsamkeppni sem hafði neikvæð áhrif á afkomu félagsins, en styrking krónunnar hafði jákvæð áhrif á fjármagnsliði. Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er þó sterk, jafnframt því sem markaðshlutdeild félagsins er að vaxa á kjötmarkaðnum.

Afkoma Sláturfélagsins hefur jafnan verið þyngst framan af árinu en best á síðasta ársfjórðungi. Þetta stafar m.a. af afkomu afurðadeildar en umsvif hennar aukast við haustslátrun sauðfjár. Gripið hefur verið til aðhaldsaðgerða til að draga úr útgjöldum auk þess sem fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum verða dregnar saman á næstu misserum. Gert er ráð fyrir að framangreindar aðgerðir og aðstæður á markaði muni leiða til bættrar afkomu Sláturfélagsins á árinu.



Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000


Reykjavík, 21. maí 2002
Sláturfélag Suðurlands svf.