Í aðalfundaboði birt þann 19. febrúar kom fram:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,70% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 3,70% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 27.405.043,- eða 0,1370 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 18,70% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 92.025.148,-Arðleysisdagur er 23. mars og arðréttindadagur er 24. mars. Greiðsludagur arðs er 27. mars n.k.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands leggur fram eftirfarandi viðbótatillögu við lið 6 í dagskrá :
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,70% arður af A-deild stofnsjóðs, alls 67,4 m.kr. Miðast er við stöðu félagsmanna í A-deild 31.desember 2025.
Í þeim tilfellum sem arðgreiðsla til einstakra félagsmanna í A-deild er lægri en 10 þ.kr. eða bankaupplýsingar eru ekki fyrir hendi leggst arðgreiðslan við stofnreikning hjá viðkomandi félagsmanni hafi hann ekki óskað eftir útgreiðslu arðsins og veitt fullnægjandi bankaupplýsingar fyrir greiðsludag arðs. Greiðsludagur arðs er 27. mars n.k.
Reykjavík 3. mars 2026
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.