Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. sem halda átti föstudaginn 20. mars 2026 á Goðalandi í Fljótshlíð kl. 15:00 hefur verið frestað um viku vegna slæmrar veðurspár. Verður aðalfundur Sláturfélags Suðurlands því haldinn 27. mars á Goðalandi í Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.
Í fundarboði er birt var þann 19.febrúar sl. var tilgreint í lið 6 í dagskrá að
,,Arðleysisdagur er 23. mars og arðréttindadagur er 24. mars. Greiðsludagur arðs er 27. mars n.k.“
Vegna frestunar falla þessar dagsetningar úr gildi og nýjar dagsetningar verða eftirfarandi:
Arðleysisdagur: 30. mars
Arðréttindadagur : 31.mars
Greiðsludagur arðs: 7. apríl
Í viðbótartillögu stjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. er birt var þann 3. mars sl. var tekið fram að greiðsludagur arðs á A-deild stofnsjóðs væri 27. mars n.k. Sú dagsetning fellur úr gildi og greiðsludagur arðs á A-deild stofnsjóðs verður 7. apríl.
Reykjavík 19.mars 2026
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.