Niðurstöður aðalfundar 29. mars 2019

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf.     Hér á PDF. formi.

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 29. mars 2019 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð.

1. Ársreikningur
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2018.

2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykkt
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 13,26% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 3,26% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 23.877.857,- eða 0,13 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 17.672.512,- Arðleysisdagur er 1. apríl og arðréttindadagur er 2. apríl. Greiðsludagur arðs er 16. apríl n.k.

3. Kosning stjórnar
Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

Aðalmenn:
Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449
Kristinn Jónsson, varaformaður, kt. 020460-3939
Ingibjörg Daníelsdóttir, ritari, kt. 081254-5329
Guðrún S. Magnúsdóttir, kt. 270875-5729
Sverrir Gíslason, kt. 060469-4319

Til vara:
Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119
Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689
Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299
Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, kt. 260864-5489
Þorsteinn Logi Einarsson, kt. 221082-5169

4. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda
Löggiltur endurskoðandi:
Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

Skoðunarmenn:
Aðalmenn:
Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509
Jónas Erlendsson, kt. 230263-7369

Varaskoðunarmenn:
Finnur Pétursson, kt. 260662-2609
Ragnar Lárusson, kt. 141057-4569

5. Laun stjórnar og skoðunarmanna
Stjórnarformaður kr. 1.349.000,- á ári.
Meðstjórnendur kr. 674.000,- á ári.
Skoðunarmenn kr. 177.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 177.000,- á ári.