Dagskrá aðalfundar 22. mars 2013


Auglýsing aðalfundar SS

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund á pdf formi. 
 

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 22. mars 2013 á Goðalandi  Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.
 
            Dagskrá:
 
                1.         Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.  
2.             Skýrsla stjórnar félagsins.
3.             Starfsemi félagsins á liðnu ári.
4.             Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
5.             Skýrsla skoðunarmanna.
6.             Tillögur um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs:
a.     Tillaga eigenda hluta í B-deild stofnsjóðs um greiðslu arðs.
b.     Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
7.             Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögur um vexti og arð af stofnsjóði.
8.             Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
9.             Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
10.          Kosin stjórn félagsins.
11.          Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
12.          Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
13.          Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.
 
 Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
 
 Tillögur:
 
Liður 6 a. í dagskrá: Tillaga eigenda hluta í B-deild stofnsjóðs um greiðslu arðs.
 
Virðing hf. og Ólafur Wernersson eigendur hluta í B-deild stofnsjóðs krefjast þess með vísun í innsenda tillögu frá 22. febrúar s.l. að greiddur verði 15% arður á höfuðstól hluta í B-deild auk arðs vegna verðbóta.
 
 
Liður 6 b. í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
 
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 14,5% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 4,5% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 26.110.778,- eða 0,15 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 7% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 19.798.567,- Arðleysisdagur er 25. mars og arðréttindadagur er 27. mars. Greiðsludagur arðs er 24. apríl n.k.
  
Liður 9 í dagskrá: Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
 
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins:
 
Tillaga að breyttu orðalagi 3. mgr. 4. gr. samþykkta SS:
 Lögaðilum skal heimiluð aðild að félaginu ef þeir uppfylla að öðru leyti skilyrði samþykktanna. Fyrirsvarsmaður lögaðila, að jafnaði stjórnarformaður eða framkvæmdastjóri með prókúru, skal fara með réttindi og atkvæðisrétt lögaðila á deildarfundum/félagsfundum. Ef ágreiningur verður á milli eigenda lögaðila um hver fer með réttindi og atkvæðisrétt lögaðila á deildarfundum/félagsfundum, sem ávallt skal aðeins vera einn aðili, þá skal lögaðilinn vera án félagsréttinda á þeim fundi nema fulltrúi hans leggi fram lögmætt umboð um rétt sinn frá þeim sem heimild hafa til þess að skuldbinda lögaðilann. Stjórnarmenn lögaðila eru kjörgengir til ábyrgðarstarfa fyrir félagið eins og aðrir félagsmenn þess.    
  
Tillaga að nýrri 27. gr. samþykkta SS:
 Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna til eins árs í senn, einn aðalmaður og einn varamaður úr hverri sýslu með þeim undantekningum að einn stjórnarmaður og einn varamaður er kosinn sameiginlega úr Vestur-Skaftafellssýslu og Austur-Skaftafellssýslu og einn stjórnarmaður og einn varamaður er kosinn sameiginlega úr Borgarfjarðarsýslu, Mýrarsýslu, Snæfells- og Hnappadalssýslu og Dalasýslu. Deildum þeirra sýslna sem kjósa skal stjórnarmann úr er heimilt að bera fram tillögur um menn til stjórnarstarfa fyrir þeirra hönd.
  
Ef aðalmaður deyr, gengur úr félaginu eða víkur úr stjórninni á löglegan hátt, áður en kjörtími hans er liðinn, tekur varamaður úr sömu sýslu, eða frá sama svæði, sæti til fulls í hans stað.
 
Enginn félagsmaður getur skorast undan kosningu í stjórn félagsins, nema um jafnmörg ár og hann hefur næst áður verið í stjórninni, og með samþykki hans má endurkjósa hann í stjórn.
 
Félagsstjórn velur að loknu stjórnarkjöri formann og varaformann úr sinum flokki, en skiptir ekki með sér verkum að öðru leyti.
  
Ákvæði til bráðabirgða:
 Ef tillaga þessi verður samþykkt, þá felur hún það í sér að bundinn er endir á kjörtímabil allra stjórnarmanna félagsins, bæði aðal- og varamanna, óháð hversu langt er eftir af kjörtímabili þeirra samkvæmt eldri ákvæðum samþykktanna. Kosin verður ný stjórn í kjölfar samþykktar tillögunnar, allir aðal- og varamenn, til eins árs.
  
Reykjavík, 6. mars 2013. 
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

Afurðaverðskrá sauðfjár haustið 2013 og nýtt fréttabréf.

Nýtt fréttabréf er komið út ásamt verðskrá SS á innlögðu kindakjöti haustið 2013. Í fréttabréfinu er m.a. komið inn á endurbætur á starfstöð félagsins á Selfossi, horfur á kjötmarkaði, fyrirkomulagi á haustslátrun og heimtöku.  Einnig fjallað um áburðar- og fóðurviðskipti og vörunýjungar.

Nánari upplýsingar um nýtt fréttabréf og afurðaverðskrá sauðfjár 2013:

Fréttabréf SS 25. júlí 2013 – vefrit

Fréttabréf SS 25. júlí 2013 – pdf 

Afurðaverðskrá sauðfjár 25. júlí 2013