

Sláturfélag Suðurlands er stofnað 1907 og hefur frá þeim tíma verið í fararbroddi fyrirtækja í kjötiðnaði. SS er með starfssemi á Hvolsvelli, Selfossi og Reykjavík. Hjá SS starfa rúmlega 300 manns við ýmis störf, m.a. kjötvinnslu, slátrun og innflutning á ýmsum vörum. Við bjóðum starfsumhverfi fyrir fólk með metnað til að gera vel.
Ráðningar
Starfsmannastjóri sér um mannaráðningar hjá SS. Stefna félagsins er að tilkynna ávalt um lausar stöður meðal starfsfólks áður en leitað er út fyrir fyrirtækið. Þetta er gert til þess að starfsmenn geti tekist á við ný og spennandi verkefni innan félagsins.
Starfsmannafélag
Innan SS er starfandi virkt starfsmannafélag. Starfsmannafélagið stendur m.a. fyrir nokkrum viðburðum á hverju ári auk þess að sjá um rekstur sumarhúsa félagsins.