Fyrirspurnir | Veftré | English
Leita á SS.is

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Vörur
  • Um SS
  • Til bænda
  • Fjárfestar
  • Mín síða
  • RSS
Stækka leturstærðVenjuleg leturstærð

La pulsa
Starfshættir SS
Í gegnum tíðina hafa skapast og verið skapaðar hefðir um það hvernig starfsmenn félagsins vinna að markmiðum sínum. Í samkeppni á markaði leggur félagið áherslu á eftirfarandi starfshætti sem mikilvæga eiginleika SS fólks.
Þessir starfshættir eru hluti af því sem við erum og með mikilvægari þáttum í rekstri félagsins sem stuðla að velgengni.

Starfsháttum okkar viljum við skipta í fimm þætti sem eru eftirfarandi :

Frumkvæði
Til að halda forystu á markaði þarf frumkvæði. Frumkvæði til að gera nýja hluti, vera leiðandi. Á markaði látum við hlutina gerast með nýjum vörum, nýrri þjónustu og bjóðum viðskiptavinum okkar verðmæti í viðskiptum sem taka fram því sem keppinautar bjóða. Með þeim hætti einum getum við tryggt stöðu okkar.

Inn á við höfum við frumkvæði til að gera sífellt betur. Jafnt stjórnendur sem aðrir starfsmenn. Ekkert er gert eingöngu af því að það hafi alltaf verið gert eins áður. Umhverfið breytist í sífellu og við þurfum að breytast með og á undan öðrum. Það eina sem breytist ekki er þörfin á sífelldri endurskoðun, sífelldum breytingum.

Við höfum frumkvæði til að leita nýrra leiða til að auðvelda okkur verkin og skapa aukin verðmæti starfsfólki og fyrirtæki til góða.

Samvinna
Heildin er sterkari en einstaklingarnir. Með því að vinna saman að sameiginlegu markmiði náum við árangri. Fyrirtækið er óslitin keðja þar sem reynir á hvern hlekk. Samvinna deilda, samvinna starfsmanna skapar árangursríkan og skemmtilegan vinnustað. Við stefnum fram á við og viljum vaxa í starfi og njóta til þess samvinnu og stuðnings fyrirtækisins.
Í keppni á markaði erum við metin sem heild og það er frammistaða heildarinnar sem skiptir höfuðmáli gagnvart viðskiptavinum.

Gæði
Okkur er treyst til að framleiða og dreifa matvælum til neytenda. Þessu trausti fylgir sú ábyrgð að vanda til verka. Standa undir nafni og styðja og styrkja það álit sem við njótum á markaði. Gott mannorð starfsfólks og fyrirtækis er gulls ígildi.
Í allri starfsemi höfum við gæði að leiðarljósi með það að markmiði að gera hvern hlut aðeins einu sinni og gera hann rétt.

Þjónusta
Þjónusta snýst um að viðskiptavinir fái vörur með réttum hætti. Að samskipti þeirra við félagið séu ánægjuleg og árangursrík og að mætt sé þörfum þeirra innan þeirra marka sem félagið setur sér. Þjónusta lýtur einnig að því að sjá fyrir þarfir viðskiptavina og bjóða þeim með þeim hætti aukin verðmæti í viðskiptum við félagið.
Þjónusta snýr einnig inn á við að eigendum og samstarfsfólki. Styrkir samvinnu og gerir kröfu um gagnkvæma virðingu í samskiptum jafnt inn á við sem út á við.

Ráðdeild
Við sýnum ráðdeild í rekstri og bruðlum ekki með fjármuni félagsins. Vinnuumhverfi og búnaður skal uppfylla ströngustu kröfur en ekki vera ofhlaðið eða bera með sér íburð.
Samstarfsmenn, eigendur og viðskiptavinir skulu sjá á öllu framferði okkar að vel sé farið með fjármuni. Hagkvæmni og ráðdeild skapa virðingu.



Sláturfélag Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, Sími 575-6000 Fax 575-6090