


Starfsemi
Sláturfélag Suðurlands svf. er samvinnufélag, í eigu búvöruframleiðenda á félagssvæði sínu og almennra hluthafa. Félagið starfar því á grundvelli laga um samvinnufélög nr. 22/1991.
Félagssvæði Sláturfélagsins skv. samþykktum er Vestur-Skaftafellssýsla, Austur- Skaftafellssýsla austur að Jökulsá á Breiðamerkursandi, Rangárvallasýsla, Árnessýsla, Kjósar- og Gullbringusýsla, Borgarfjarðarsýsla, Mýrarsýsla, Snæfells- og Hnappadalssýsla og Dalasýsla auk bæja og kaupstaða innan framangreindra svæða.
Tilgangur félagsins er skv. samþykktum, að annast slátrun, úrvinnslu og sölu á framleiðslu félagsmanna. Félagið flytur einnig inn vörur og stundar aðra verslun eftir því sem það styrkir sölu á framleiðslu félagsins.
Með hliðsjón af tilgangi félagsins og stöðu þess er höfuðmarkmið félagsins að vera leiðandi matvælafyrirtæki sem starfar á heildsölustigi og dreifir vörum á landsvísu. Félagið starfar á þremur sviðum, slátrun, kjötiðnaði og innflutningi.
Sláturfélag Suðurlands svf. er með höfuðstöðvar að Fosshálsi 1, Reykjavík. Að Fosshálsi eru auk skrifstofu, markaðs- og söludeildir. Á Hvolsvelli er meginhluti kjötiðnaðar staðsettur ásamt frystihúsi og vörudreifingu kjötvara. Sláturhús rekur félagið á Selfossi ásamt úrbeiningu á kjöti og pökkunarstöð.
Afurðadeild
Undir afurðadeild félagsins fellur slátrun og rekstur frystihúsa. Í engu sláturhúsi á landinu fer fram jafn mikil slátrun og í sláturhúsi félagsins á Selfossi. Sláturhúsið á Selfossi er með útflutningsleyfi á markaði ESB og og svo verið frá hausti 1996.
Deildin er með um 20% af samanlagðri slátrun sauðfjár, nautgripa, svína og hrossa. Afurðadeild SS selur kjöt fyrst og fremst til kjötiðnaðar félagsins, en í minna mæli til annarra dreifingaraðila.
Kjötiðnaður
Undir kjötiðnað fellur kjötvinnsla á Hvolsvelli, ásamt úrbeiningu á kjöti og pökkun til útflutnings á Selfossi. Kjötvinnsla Sláturfélagsins var flutt á árinu 1991 til Hvolsvallar frá Reykjavík þar sem hún hafði verið frá upphafi. Um er að ræða stærstu og fullkomnustu kjötvinnslu landsins.
Mikið starf hefur verið unnið í uppbyggingu á gæðakerfi hjá kjötiðnaði félagsins. Komið hefur verið á innra eftirliti í samræmi við svokallað GÁMES gæðakerfi. Til að tryggja þessu verkefni framgang hafa verið haldin námskeið og fundir með starfsmönnum.
Starfsstöð kjötvinnslunnar á Hvolsvelli hlaut umhverfis- og vinnuverndunarviðurkenningu Iðnlánasjóðs 1995 og Fjöregg MNÍ 1996 (Matvæla- og næringarfræðingafélag Íslands) fyrir framúrskarandi árangur í vöruþróun. Kjötiðnaðarmenn félagsins hafa einnig í gegnum árin unnin til fjölda verðlauna fyrir vörur sem sendar hafa verið á sýningar og í keppni bæði innanlands og utan.
Mikil áhersla hefur verið á vöruþróun undanfarin ár en stefna félagsins er að 10% af sölu hvers árs í kjötiðnaði komi frá nýjum framleiðsluvörum.
Framleiðsla kjötiðnaðar er markaðssett undir fjölmörgum vörulínum. Í vörumerkjum félagsins liggja verðmæti sem skapast hafa á umliðnum árum með stöðugri markaðssetningu framleiðslunnar.
Kjötvinnsludeild Sláturfélagsins er stærsti einstaki aðili í kjötiðnaði hér á landi með markaðshlutdeild einstakra vörutegunda allt að 80%. Staða SS á pylsumarkaði hér á landi er sérstaklega sterk. Skv. könnun ÍM Gallup á pylsumarkaðnum frá því í desember 1996 kemur fram að rúmlega 89% úrtaksins dettur fyrst í hug SS pylsur þegar spurt er um pylsu og þegar spurt er um hvaða skyndirétti þú kaupir tilbúna og aðeins þarf að hita upp, þá nefna 50,4% úrtaksins ,, 1944 - Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga" sem framleiddir eru af SS. Í könnun frá því í febrúar 1996 var hlutfallið 40%. Fjölgun þeirra sem nefna 1944 vörulínuna, er í takt við auknar vinsældir vörunnar, en í árslok 1998 voru réttirnar 25 talsins.
°
Birt með leyfi ÍM Gallup.
Innflutningsdeild
Innflutningsdeild félagsins er staðsett að Fosshálsi 1 í Reykjavík. Deildin hefur einkaumboð fyrir mörg þekkt vörumerki, sem eru leiðandi hvert í sínum vöruflokki, má þar nefna m&m sælgæti, Barilla pasta, Uncle Ben´s hrísgrjón og sósur, og krydd frá McCormick.
Innflutningsdeild Sláturfélagsins hefur vaxið á undanförnum árum. Á árinu 1994 hóf SS innflutning á Mars sælgæti og um mitt ár 1995 var leyfður innflutningur á ís og var SS fyrst innlendra fyrirtækja til að hefja þann innflutning með Mars sælgætisís. Innflutningur á hinu vinsæla m&m sælgæti hófst um miðjan janúar 1998.
Innflutningsdeild SS hefur náð góðum árangri við markaðssetningu einstakra vörutegunda. Skv. könnun ÍM Gallup á hrísgrjónamarkaðnum frá því í febrúar 1996 kemur fram að 63% úrtaksins dettur fyrst í hug Uncle Ben´s hrísgrjón þegar spurt er um hrísgrjón og þegar spurt er um vörumerki í kryddi dettur 18% úrtaksins í hug McCormick sem SS flytur inn.
Yara
Sláturfélagið hóf samstarf við Norsk Hydro(nú Yara) á árinu 1999 um innflutning á áburði og sér nú um sölu og dreifingu áburðar á landsvísu. Það er stefna Sláturfélagsins að bjóða bændum hágæða áburð á hagstæðu verði sem stuðlar að lækkun framleiðsukostnaðar og hreinleika afurða. Yara leggur áherslu á að vinna með bændum við að þróa áburð sem uppfyllir ströngustu kröfur um um gæði og umhverfisáhrif. Sláturfélagið er leiðandi í sölu á einkorna áburði.
DLG
Sláturfélagið er í samstarfi við Dansk Landbrugs Growareselskab (DLG) í innflutningi á kjarnfóðri. DLG er stærsti framleiðandinn á kjarnfóðri í Danmörku með um 29.000 bændur sem félagsmenn. DLG er með um 46% markaðshlutdeild á kjarnfóðri í Danmörku auk þess að flytja út kjarnfóður.
Fjárfestingarstefna og eignarhluti í félögum
Á árinu 1995 var stofnað dótturfélagið SS Afurðir ehf., sem hóf rekstur frá og með 1. janúar 1996. Hlutafé SS Afurða ehf. var 300 mkr. í árslok 1998. Starfsemi SS Afurða ehf. fólst í slátrun og geymslu afurða fyrir Sláturfélag Suðurlands svf. SS Afurðir ehf. var sameinað Sláturfélaginu 1. janúar 2002.
Í apríl 2001 opnaði Sláturfélagið kjötvinnslu í Videbæk í Danmörku. Starfsemin er rekin undir dótturfélagi Sláturfélagsins Guldfoss. Guldfoss fyrst og fremst sölu á íslensku lambakjöti í Danmörku, en úrvinnlu hefur verið hætt að mestu. Markmið SS með starfseminni í Danmörku er að komast nær dönskum og öðrum evrópskum neytendum. Vörunar eru seldar undir vörumerkjum SS sem hafa verið skráð erlendis. Starfsemi Guldfoss var hætt á árinu 2007.
Á árinu 1995 var stofnað af Ágæti hf. og Sláturfélaginu fyrirtækið Hollt og Gott ehf. til að annast salat- og sósuframleiðslu félaganna. Á árinu 1998 bættust við tveir nýir hluthafar, Mjólkurbú Flóamanna(nú Auðhumla svf.) og Sölufélag Garðyrkjumanna. Hlutfé Hollt og Gott ehf. skiptist jafnt á milli eigenda. Í ársbyrjun 1999 var starfsemi félgsins flutt í tæplega 900 fermetrar húsnæði að Fosshálsi 1, Reykjavík en félagið festi kaup á eigninni undir lok ársins 1998. Í ársbyrjun 2004 keypti SS 25% hlut til viðbótar og á þá 50% eignarhlut á móti Auðhumlu svf.
Á árinu 1998 keypti Sláturfélag Suðurlands helmingshlut í Ísfugli ehf., öðru af tveimur alifuglasláturhúsum landsins. Starfstöðvar Ísfugls eru að Reykjavegi 36, í Mosfellsbæ. Hlutafé Ísfugls ehf. var tæpar 23, 3 mkr. í árslok 1998. Í nóvember 1999 seldi Sláturfélagið 45% af heildarhlutafé, þannig að eignarhlutur félagsins er 5% eftir söluna. Í desember 2001 keypti Sláturfélagið viðbótarhlut í Ísfugli ehf. og er eignarhlutur félagisins 30%
Þann 29. nóvember 2001 keypti Sláturfélagið 37,5% hlut í Ferskum kjötvörum ehf., Síðumúla 34, Reykjavík. Sláturfélagið kaupir síðan 20% hlut til viðbótar og eignast þannig 57,5% fyrirtækisins. Ferskar kjötvörur er kjötvinnsla sem sérhæfir sig í úrvinnsluvörum úr svíni og nautgripum. Í sept. 2003 eykur SS hlut sinn um 10% með auknu hlutafé. Eignarhluti alls 63,66%. Í apríl 2005 var allur eignarhluti SS í Ferskum kjötvörum seldur Högum hf.
Í ágúst 2002 gerði Sláturfélagið samkomulag um kaup á 67% hlut í Reykjagarði hf. og hefur SS auk þess kauprétt á 16% hlut til viðbótar. Reykjagarður er stærsti kjúklingaframleiðandi landsins með meginstarfsemi á Hellu. Í sept. 2003 er fyrra samkomulagi vikið til hliðar og kaupa SS Eignir ehf. sem er 100% í eigu SS allt hlutafé Reykjagarðs hf. Í lok árs 2004 var SS Eignir sameinað Reykjagarði og hlutafé aukið. Eftir þá breytingu á SS 51% í Reykjagarði. Í nóvember 2007 keypti SS 49% eignarhluta í Reykjagarði og er frá þeim tíma 100% eigandi hlutafjár í félaginu.
Stefna félagsins er að kaupa ekki eignarhluta í öðrum félögum, nema það styrki rekstur félagins til lengri tíma.