25. janúar 2012
Verðskrá Yara áburðar fyrir árið 2012 er komin út. Ný áburðartegund bætist í vöruframboðið en það er tegundin NPK 15-7-12 sem er mjög rík af fosfór. Tegundin hentar vel á nýræktir, korn, fóðurkál og áburðarfrek tún. Allur Yara áburður er einkorna gæðaáburður.