SS   |   Fosshalsi 1   |   110 Reykjavik  |   Simi 575 6000   |   Fax 575 6090   |   Kl 600269-2089

Fjölmiðlatorg

Vörumerki Sláturfélags Suðurlands eru þrjú: SS, Búrfell og 1944.

Þeir aðilar sem nýta merkin eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér reglur varðandi notkun þeirra. Gæta verður þess sérstaklega að  breyta ekki hlutföllum merkjanna og nota rétt litanúmer. 

Vörumerkið SS

Merkið er kokkahúfa og skuggi af höfði með áletruð tvö S sem vísa til nafns félagsins, Sláturfélags Suðurlands. Kokkahúfan er lýsandi fyrir matvæli og stendur fyrir gæði og traust. SS er eitt elsta vörumerki landsins og þekkt fyrir gæði, traust og þjóðlega matarhefð. Af þeim sökum er notuð tenging við íslensk fjöll í útliti og umbúðum SS vara.

Litur merkisins er rauður.

Rauður er litur umbreytingar, elds og orku en hvítur er litur hreinleika og íss. Hvorugtveggja er einkennandi fyrir Ísland.

Annarsvegar er merkið með slagorðinu „fremstir fyrir bragðið“ og hinsvegar kokkahúfan ein og sér.

merki_ss_m_slagordi_1x                    merki_ss_1x

Rauður:
Pantone Matching System:
PMS 185
Offset prent:
C0M100Y100K0
Skjálitur
R204G0B0

Ná í Pdf skrá af SS merkinu með slagorði
Ná í Pdf skrá af SS merkinu án slagorðs




 
Vörumerkið Búrfell

Merkið er mynd af fjallinu Búrfelli í Þjórsárdal og heiti fjallsins.
 
Litur merkisins er blár. Blár er litur vatns og fjarlægðar en hvítur er litur hreinleika og ís.


merki_burfell_1x

Sérlitir Búrfells:
Ljósblár, Pantone 286
Dökkblár, Pantone 281

Ná í Pdf skrá af Búrfells merkinu



Vörumerkið 1944
Merkið er mynd af pari með ártalið 1944 í bakgrunni.  Ártalið vísar til þeirra sögulegu tímamóta er Ísland varð sjálfstæð þjóð og er sjálfstæðið í vörumerkinu tilvísun til sjálfstæðs lífsstíls og nýjunga í matargerð. Unga parið horfir til framtíðar til betri og bjartari tíma.

Merkið er undantekningalaust haft á gulum grunni og látið skera sig út þannig.

merki_1944_1x

Gulur :
C0M0Y100K0
Svartur
C10M10Y10K100
Rauður
C0M100Y100K0
Appelsínugulur
C0M35Y100K0

Ná í Pdf skrá af 1944 merkinu

 

Upplýsingar til fjölmiðla veitir Steinþór Skúlason forstjóri   í síma :  5756000  eða í tölvupósti :   steinthor@ss.is