Lengi hefur tíðkast hér á landi að taka slátur á haustin þó að vinsældir slátursins hafi nokkuð dvínað síðustu ár. SS heldur þó áfram að gefa landsmönnum tækifæri á því að taka sitt eigið slátur, líkt og síðustu ár, og stendur fyrir sláturmarkaði ásamt Hagkaupum, í verslun þeirra í Skeifunni! Þar er allt til alls í sláturgerðina og ekkert því til fyristöðu að búa til þennan þjóðlega og góða mat.
Hér má svo finna leiðbeiningar um hvernig standa skuli að sláturgerðinni.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu!