Okkar menn stóðu sig vel í Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna sem fram fór um síðustu helgi.

Jón Þorsteinsson varði titilinn “Kjötmeistari Íslands” og hlaut 254 stig.  Steinar Þórarinsson varð í 3.-5. sæti um þann sæmdar titil með 250 stig.

Níu kjötiðnaðarmenn þeir Steinar Þórarinsson, Björgvin Bjarnason, Bjarki Freyr Sigurjónsson, Oddur Árnason, Samúel Guðmundsson, Hermann Bjarki Rúnarsson, Einar Sigurðsson, Jónas Pálmar Björnsson og Jón Þorsteinsson sendu samtals 33 vörur inn í keppnina.  Hlutu þeir 19 gullverðlaun, 6 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun.  Því hlutu 85% innsendra vara verðlaun og gullverðlaun voru 68% verðlaunanna. Auk þess féllu í þeirra skaut fimm sérverðlaun auk hins eftirsótta titils Kjötmeistara Íslands.

Keppnin fer þannig fram að kjötiðnaðarmenn senda inn vörur með nafnleynd til dómarahóps, sem dæmir vörurnar eftir faglegum gæðum.  Hver keppandi má senda inn allt að 10 vörur til keppninnar.  Allar vörur byrja með fullt hús stiga eða 50 stig.  Dómarar leita síðan að öllum hugsanlegum göllum.  Við hvern galla sem finnst, fækkar stigum.  Með þessu fyrirkomulagi geta margar vörur haft gull-, silfur-, eða bronsverðlaun.

– Til þess að fá gullverðlaun þarf varan að hafa 49-50 stig og vera nánast gallalaus.
– Til þess að fá silfurverðlaun þarf varan að hafa 46-48 stig og má aðeins vera með lítilsháttar galla.
– Til þess að fá bronsverðlaun þarf varan að hafa 42 til 45 stig.

Árangur einstakra manna er sem hér segir:

Jón Þorsteinsson
Kjötmeistari Íslands            254 stig
Besta vara unnin úr svínakjöti        Hráskinka
Besta varan í flokknum sælkeravörur    Hráskinka
Sex gullverðlaun                Hráskinka, Hangikjet, Kindakæfa, Chili-pylsur, Skarfa-lifrarkæfa, Útselspate
Þrenn silfurverðlaun            Sunnlenskt-salamí, Sveita-salamí, Úrbeinað hangiket

Steinar Þórarinsson
3-5. sæti í keppni um Kjötmeistara Ísl.    250 stig
Besta varan unnin úr hrossa
eða folaldakjöti                Grafið fille
Fimm gullverðlaun            Grafið folaldafille, Grafið hrossafille, Sviðasulta, Sælkerakæfa
með rifsberjahlaupi, Svínalifrarkæfa með jarðarberjahlaupi.
Björgvin Bjarnason
Besta varan unnin úr kjúklingakjöti        Ítalskt kjúklingapaté
Ein gullverðlaun                Ítalskt kjúklingapaté
Ein bronsverðlaun            Veiðipylsa

Oddur Árnason
Athyglisverðasta nýjung keppninnar    Nammi naut
Ein gullverðlaun                Nammi naut
Ein silfurverðlaun            Salsa kæfa

Samúel Guðmundsson
Tvenn gullverðlaun            Hrossasulta fín, Hrossasulta gróf

Hermann Bjarki Rúnarsson
Tvenn gullverðlaun            Grillpylsur með Cheddar osti, Kálfasulta

Jónas Pálmar Björnsson
Ein gullverðlaun                Taðreykt lambafille
Tvenn silfurverðlaun            Creola Wurzt, Folalda piparjerky

Einar Sigurðsson
Ein gullverðlaun                Chili ostapylsa
Ein silfurverðlaun            BBQ beef jerkey

Bjarki Freyr Sigurjónsson
Ein bronsverðlaun            Heiðarpaté

Það er í senn heiður og ánægja að hafa slíka ofurfagmenn í okkar annars vaska og metnaðarfulla fagmannahópi.  Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum þetta árangursríka framlag til eflingar fagmennsku og gæða hjá okkur og íslenskum kjötiðnaði í heild.

Allir2

IMG_6637u

 

 

 

 

 

IMG_6644u

 

 

 

 

IMG_6665u

 

 

 

 

IMG_6651u

 

 

 

 

IMG_6670u

 

 

 

IMG_6675u
IMG_6691u

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_6693u3