Fyrirspurnir | Veftré | English


 

 
27. desember 2010
| Fréttir 2010

Til að koma á móts við óskir innleggjenda birtir SS verðhlutföll kindakjöts haustið 2011. Verðhlutföllin hjálpa bændum til að meta hvenær hagkvæmast er að slátra eftir aðstæðum hvers og eins. Verðtafla verður síðan birt tímanlega fyrir sláturtíð. Áætlað er að hefja slátrun miðvikudaginn 31. ágúst 2011 sem er um

27. desember 2010
| Fréttatilkynningar

· Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu hefst í janúar og áætlað að henni ljúki eigi síðar en 30. júní 2011. · Endurskipulagningin er unnin í samstarfi við Arion banka hf. sem er aðal lánveitandi félagsins. · Stefnt er að því að lán við Arion banka verði endurfjármögnuð og

20. desember 2010
| Fréttir 2010

Sala á nautgripakjöti hefur gengið vel og því hefur Sláturfélagið ákveðið að hækka verð á nautakjöti til bænda frá og með 20. desember 2010. Um er að ræða hækkun á bilinu 9-11 kr/kg. mismunandi eftir gæðaflokkun. Vegin meðaltalshækkun er liðlega 2%. Nánari upplýsingar í verðskrá.

15. desember 2010
| Fréttir 2010

Vegna hækkana á innkaupsverði frá DLG sem stafar af hækkun á erlendum hrávörumarkaði þarf SS að hækka verð á kúafóðri. Hækkunin er á bilinu 8 - 8,5% eftir tegundum. Þrátt fyrir miklar hækkanir á erlendum mörkuðum á undanförnum mánuðum hefur verði á kúafóðri verið haldið óbreyttu frá 1. júní 2010.

02. nóvember 2010
| Fréttir 2010

Vetrarslátrun verður framkvæmd 25. nóvember 2010. Nauðsynlegt er að bændur í samstarfi við deildarstjóra á hverju svæði sameini litla sláturhópa til að flýta fyrir og halda kostnaði við flutninga í lágmarki. Sem fyrr er brýnt að sláturgripir séu hreinir þannig að tryggja megi hreinlæti við slátrun og heilbrigðar afurðir.

01. nóvember 2010
| Fréttir 2010

Sala á nautgripakjöti hefur gengið vel síðustu vikur og því hefur Sláturfélagið ákveðið að hækka verð á nautakjöti til bænda frá og með 1. nóvember 2010. Um er að ræða hækkun á bilinu 8-11 kr/kg. mismunandi eftir gæðaflokkun. Vegin meðaltalshækkun er liðlega 2%. Nánari upplýsingar í



Sláturfélag Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, Sími 575-6000 Fax 575-6090