Síđastliđinn fimmtudag, 27. nóvember fór slátrun í sláturhúsinu á Selfossi yfir 100.000 fjár. Aldrei fyrr hefur veriđ slátrađ svo mörgu fé í einu sláturhúsi á Íslandi og er ţví um Íslandsmet ađ rćđa. Gert er ráđ fyrir ađ slátrun fari í 111 ţúsund fjár áđur en vetrarslátrun lýkur ţann, 18. des. n.k.
Međalvikt dilka ţađ sem af er er 15,2 kg. Innviktađ magn til innleggs er 1.511,5 tonn og 60,3 tonn eru heimtekiđ. Ţá var slátrađ 1376 kindum í páskaslátrun, sem gáfu af sér u.ţ.b. 21 tn. af kjöti. Ţví hafa fariđ í gegnum húsiđ tćp 1.600 tn.
Til gamans má geta ţess ađ til ađ sćkja ţetta fé til bćnda hafa veriđ eknir 114 ţús. km. og til ađ slátra og vinna afurđirnar til geymslu og útflutnings hafa veriđ notađar u.ţ.b. 52 ţúsund vinnustundir, sem eru u.ţ.b. 25 mannár.
Hundrađ ţúsundasta kindin var frá Brynjólfi Ottesen, bónda í Ytri-Hólmi í Akraneshreppi, áburđarsölumanni og tengiliđ félagsins vegna sauđfjárslátrunar af Vesturlandi.
Afköst og vinnubrögđ í húsinu á Selfossi hafa veriđ til mikillar fyrirmyndar ţetta haustiđ. Til starfa hefur valist einstaklega samhentur hópur dugnađarfólks sem lagt hefur sig fram til ađ gera ofangreint ađ veruleika.
Í tilefni íslandsmetsins var starfsfólki bođiđ upp á brauđtertur og ţverhandarţykkar hnallţórur ađ hćtti Gísla og samstarfsfólks í mötuneytinu á Selfossi.
Á međfylgjandi myndum gefur ađ líta ţau Jóhönnu, Sverri og Gísla, sem boriđ hafa hitann og ţungann, hvert á sínu sviđi.
Viđ sendum okkar bestu hamingjuóskir og ţakkir á Selfoss.