16. maí 2003 | 00:00
Afkoma á 1. ársfjórđungi ársins 2003
Fréttatilkynningin í heild ásamt 5 ára yfirliti í pdf skjali (13 kb)
Afkoma á 1. ársfjórđungi ársins 2003
Rekstrartap Sláturfélags Suđurlands á tímabilinu janúar til mars 2003 var 43,2 milljónir, en á sama tímabili áriđ áđur var 8,5 milljón króna rekstrartap. Verri afkoma stafar fyrst og fremst af minni veltu vegna offrambođs á kjötmarkađi. Fjárhagsstađa Sláturfélagsins er traust međ eigiđ fé rúmar 1.182 milljónir og 42% eiginfjárhlutfall.
Rekstrartekjur Sláturfélags Suđurlands voru 747 milljónir á fyrstu ţrem mánuđum ársins 2003, en 837 milljónir á sama tíma áriđ áđur og minnkuđu um tćp 11%.
Rekstrargjöld án afskrifta námu 751 milljón á fyrsta ársfjórđungi ársins 2003 samanboriđ viđ 811 milljónir áriđ áđur og minnka um rúm 7%. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 38 milljónir sem er óbreytt frá fyrra ári. Rekstrartap án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 42 milljónir, en 12 milljónir króna áriđ áđur.
Fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld voru 16 milljónir, en á árinu á undan voru ţćr 12 milljónir. Undir fjármagnsliđum er 8 milljón króna gjaldfćrsla vegna niđurfćrslu hlutabréfa í eigu félagsins en áriđ áđur var hún 5 milljónir.
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var neikvćđ um 17 milljónir en áriđ áđur 6 milljónir. Skattar voru 1 milljón. Tap af rekstri tímabilsins var 43,2 milljónir en 8,5 milljónir áriđ áđur.
Veltufé til reksturs var 7 milljónir á fyrstu ţrem mánuđum ársins 2003, samanboriđ viđ 17 milljónir frá rekstri fyrir sama tímabil áriđ 2002.
Í lok mars 2003 voru heildareignir Sláturfélags Suđurlands 2.812 milljónir og höfđu lćkkađ um 120 milljónir frá áramótum. Skammtímaskuldir voru 969 milljónir, langtímaskuldir 661 milljón og eigiđ fé 1.182 milljónir. Eiginfjárhlutfall var 42% í lok mars 2003, en var 40% á sama tíma áriđ áđur. Veltufjárhlutfall var 1,1 í lok mars 2003, en 1,3 áriđ áđur. Lćkkun veltufjárhlutfalls milli ára skýrist af ţví ađ nćsta árs afborganir langtímalána eru í lok mars 443 milljónir króna en voru einungis 284 milljónir á sama tíma í fyrra. Um er ađ rćđa lán međ gjalddaga í júní n.k. sem verđur endurfjármagnađ.
Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 21 milljón á fyrstu ţrem mánuđum ársins og fyrir 9 milljónir í félögum.
Á árinu 2002 var undirritađ samkomulag milli Búnađarbanka Íslands hf. og Sláturfélags Suđurlands svf. um kaup Sláturfélagsins á 67% hlut í kjúklingaframleiđslufyrirtćkinu Reykjagarđi hf. Ţar sem uppgjöri vegna áreiđanleikakönnunar sem gerđ var vegna kaupanna er ekki lokiđ, ţá er kaupverđ hlutabréfanna ekki fćrt í árshlutauppgjöri Sláturfélagsins pr. 31. mars 2003.
Árshlutauppgjöriđ er međ könnunaráritun endurskođenda sem og áriđ áđur. Viđ gerđ ţess er í öllum meginatriđum fylgt sömu reikningsskilaađferđum og á fyrra ári. Reikningsskilin eru verđleiđrétt. Ef reikningsskilin hefđu ekki veriđ verđleiđrétt hefđi tap tímabilsins orđiđ 7 milljónum hćrra og eigiđ fé 20 milljónum lćgra.
Horfur fyrir áriđ 2003
Afkoma félagsins á fyrstu ţremur mánuđum ársins 2003 var óviđunandi og einkenndist af mikilli verđsamkeppni og offrambođi á kjöti á markađnum sem hafđi neikvćđ áhrif á afkomu félagsins. Gert er ráđ fyrir ađ aukiđ jafnvćgi náist á kjötmarkađnum er nćr dregur áramótum.
Afkoma Sláturfélagsins hefur jafnan veriđ ţyngst framan af árinu en best á síđasta ársfjórđungi. Ţetta stafar m.a. af afkomu afurđadeildar en umsvif hennar aukast viđ haustslátrun sauđfjár.
Ađhaldi verđur áfram beitt í rekstri félagsins, en gripiđ hefur veriđ til ţess ađ draga úr útgjöldum auk ţess sem fjárfestingar hafa veriđ dregnar saman. Gert er ráđ fyrir ađ afkoma félagsins verđi áfram ţung nćstu mánuđi en afkoma batni seinni hluta ársins.
Nánari upplýsingar veitir Steinţór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000
Reykjavík, 16. maí 2003
Sláturfélag Suđurlands svf.