13. nóvember 2003 | 00:00
Fréttatilkynningin í heild ásamt 5 ára yfirliti í pdf skjali (13 kb)
Afkoma fyrstu níu mánađa ársins 2003
Rekstrartap Sláturfélags Suđurlands á tímabilinu janúar til september 2003 var 30,0 milljónir, en á sama tímabili áriđ áđur var 14,5 milljón króna rekstrartap. Afkoma fyrir fjármagnsliđi batnar um 38 milljónir, en aukin fjármagnsgjöld og tap af rekstri hlutdeildarfélaga leiđa til 15 milljón króna lakari afkomu milli ára. Fjárhagsstađa Sláturfélagsins er áfram góđ međ eigiđ fé rúmar 1.188 milljónir og 46% eiginfjárhlutfall.
Rekstrartekjur Sláturfélags Suđurlands voru 2.398 milljónir á fyrstu níu mánuđum ársins 2003, en 2.667 milljónir á sama tíma áriđ áđur og minnkuđu um rúm 10% ađallega vegna mikillar verđsamkeppni á kjötmarkađnum. Veltusamdrćtti hefur veriđ mćtt međ lćkkun rekstrarkostnađar.
Rekstrargjöld án afskrifta námu 2.238 milljónum á fyrri hluta ársins 2003 samanboriđ viđ 2.546 milljónum áriđ áđur og minnka um 12%. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 115 milljónir sem er óbreytt frá fyrra ári. Rekstrarhagnađur án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 45 milljónir, en 7 milljónir króna áriđ áđur.
Fjármagngjöld umfram fjármunatekjur voru 36 milljónir, en á árinu á undan voru fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld 16 milljónir. Undir fjármagnsliđum er 23 milljón króna gjaldfćrsla vegna niđurfćrslu hlutabréfa í eigu félagsins en áriđ áđur var hún 14 milljónir.
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var neikvćđ um 35 milljónir en áriđ áđur 28 milljónir. Skattar voru 4 milljónir. Tap af rekstri tímabilsins var 30,0 milljónir en 14,5 milljónir áriđ áđur.
Veltufé frá rekstri var 141 milljónir á fyrstu níu mánuđum ársins 2003, samanboriđ viđ 85 milljónir frá rekstri fyrir sama tímabil áriđ 2002.
Í lok september 2003 voru heildareignir Sláturfélags Suđurlands 2.605 milljónir og höfđu lćkkađ um 326 milljónir frá áramótum. Skammtímaskuldir voru 499 milljónir, langtímaskuldir 918 milljónir og eigiđ fé 1.188 milljónir. Eiginfjárhlutfall var 46% í lok september 2003, en var 45% á sama tíma áriđ áđur. Veltufjárhlutfall var 1,7 í lok september 2003, en 0,9 áriđ áđur.
Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 78 milljónir á fyrstu níu mánuđum ársins, ađallega í tćkjabúnađi kjötiđnađar og í sláturhúsinu á Selfossi. Fjárfest var í félögum fyrir 51 milljón, en aukiđ var hlutafé í Gullfoss og Ferskum kjötvörum.
Nú í haust var undirritađ samkomulag milli Kaupţings Búnađarbanka hf. og SS Eigna ehf. dótturfélags Sláturfélags Suđurlands svf. um kaup félagsins á 100% hlut í kjúklingaframleiđslufyrirtćkinu Reykjagarđi hf. Kaupin og rekstur Reykjagarđs hf. koma inn í reikningsskil Sláturfélagsins á síđasta ársfjórđungi 2003.
Árshlutauppgjöriđ er međ könnunaráritun endurskođenda sem og áriđ áđur. Viđ gerđ ţess er í öllum meginatriđum fylgt sömu reikningsskilaađferđum og á fyrra ári. Reikningsskilin eru verđleiđrétt. Ef reikningsskilin hefđu ekki veriđ verđleiđrétt hefđi tap tímabilsins orđiđ 5 milljónum hćrra og eigiđ fé 53 milljónum lćgra.
Horfur
Afkoma félagsins á fyrri árshelmingi ársins 2003 var óviđunandi og einkenndist af mikilli verđsamkeppni og offrambođi á kjöti á markađnum sem hafđi neikvćđ áhrif á afkomu félagsins. Ekki er gert er ráđ fyrir ađ aukiđ jafnvćgi náist á kjötmarkađnum fyrr en kemur fram á áriđ 2004.
Afkoma Sláturfélagsins hefur jafnan veriđ ţyngst framan af árinu en best á síđasta ársfjórđungi. Ţetta stafar m.a. af afkomu afurđadeildar en umsvif hennar aukast viđ haustslátrun sauđfjár. Til ađ bćta afkomu sauđfjárslátrunar var sláturhúsiđ ađ Laxá aflagt í haust.
Ađhaldi verđur áfram beitt í rekstri félagsins, en gripiđ hefur veriđ til ţess ađ draga úr útgjöldum auk ţess sem fjárfestingar hafa veriđ dregnar saman. Gert er ráđ fyrir ađ afkoma félagsins batni á síđasta ársfjórđungi.
Nánari upplýsingar veitir Steinţór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000
Reykjavík, 13. nóvember 2003
Sláturfélag Suđurlands svf.